Birna

Sunday, January 30, 2005

Loksins!!

Loksins loksins, ég er komin með heimasíðu :o) Ég ætla að reyna að vera rosalega dugleg að uppfæra þessa síðu, er að koma mér upp tölvu þar sem ég bý!! Fæ netið í þessari viku svo það ætti ekki að vera langt þangað til ég skrifa næst.
En annars er allt gott að frétta, fór til suðurríkjanna fyrir tveimur vikum og hitti Gumma og Heiðrúnu í rosalegu stórri verslunarmiðstöð. Ég fékk loksins að hitta vini hans Jims úr hernum sem búa þarna niður frá. En þetta var ferð sem ég á aldrei eftir að gleyma! Við ákvaðum að hittast fyrir utan heima hjá frænda hans Jims svo við þyrftum ekki að borga fyrir geymslu á báðum bílunum. En allavegna þá lentum við í rosalegri umferð, ég tók ranga beygju og fór í þver öfuga átt við flugvöllinn. Eftir að við vorum búin að keyra um bílastæðið í smá tíma fundum við þröngt bílastæði og þurftum að hlaupa í rútuna sem við þurftum að taka til að komast í flugstöðina. En hvað haldiði, við ákvaðum að líta aftur að flugmiðanna í rútunni og tókum eftir því að við áttum að fluga eftir 5 mín!!!! Ég leit vitlaust á tímann svo :) en kommon ég hélt að við ættum að fluga klukkan 3:50 en ekki 3:05! Héðan í frá ætla ég að sína einhverjum öðrum tíman líka til að vera viss og ekki vera tæp á tíma aftur þegar ég á að fluga. Við erum búin að læra okkar lexíu, þetta var í fyrsta sinn sem við höfum misst af flugi. En allavegna þá fengum við nýtt flug og þurftum ekki að borga meira, en þurftum að bíða í tvo og hálfan tíma! Við þurftum að skipta um flugvél í Norður Carolínu (þegar maður flygur ódýrt í usa þá þarf maður oft að skipta um flug), við þurftum að hlaupa í næstu flugvél til að vera viss um að við myndum ekki missa af henni. Á þessum tímapúnti vorum við dauðþreytt eftir langan dag og svöng því í þessum flugvélum færðu bara smá saltstangir og einhvað að drekka. Klukkan er um hálf tíu og það átti að hleypa inn í vélina 20 mín í 10. Við komum á réttum tíma og erum rosalega ángæð að hafa hlaupið (eða þannig, bakið að drepa mig) og setjumst hjá hliðinu. Hvað haldið þið, þau ákváðu að hleypa fólki ekki strax í vélina því þau voru að bíða eftir fólki úr öðru flugi!! þau áttu við OKKUR (og einhvað annað fólk), þau höfðu víst vagna fyrir þessa farþega til að flytja þá á milli, ég var SVO þakklát fyrir að hafa hlaupið! Sv sitjum við þarna og bíðum eftir hinum farþegunum og erum orðin frekar svöng því þegar við vorum að hlaupa í gegnum flugstöðina þá sáum við fullt af veitingastöðum og allt leit svo girnilega út. Svo við sitjum þarna og hlustum á þessa skrítnustu málýsku sem ég hef heyrt. Suðurríkjahreimurinn er mjög hlægilegur, ég átti svo bátt með að springa ekki úr hlátri, ég skildi ekki hvað fólk var að segja í þessum hátölurum um flugið og Jim þurfti að þýða. Það urðu víst einhver tæknileg vandamál og fluginu var seinkað, FRÁBÆRT!! Ég ákvað að fara í fæðuleit fyrir okkur meðan Jim passaði töskurnar, ég labba allaleiðina í aðalbygginguna og kemst að því að allir veitingastaðirnir loka klukkan 10, klukkan var 10:10!! Ofboðslega var ég ánægð þegar ég var búin að labba alla leiðina til baka og komst að því að það eina sem við áttu var næstum full vatnsflaska og einhvað tekex sem Jim hafði meðferðis. Náðum við að sejða hungrið með þessum kræsingum. En við fengum eftir nokkra bið að fara í flugvélina og sváfum restina af leiðinni í mjög lítilli flugvél. Þetta endaði samt allt saman vel og vinur hans Jims náði í okkur og hittum við nokkra vini hans þarna strax um kvöldið.
Ég segi ykkur restina seinna því einhvað verða ég nú að hafa til að akrifa um :þ Það er reyndar svolítið spennadi að gerast á morgun því að hlómsveitinn hans Jims er að fara að í studio að taka upp 3 lög. Segji ykkur allt um það seinna.