Vá!!
Ég er í ekkert smá góðu skapi núna ('',) ég var að komast að því að FF, hljómsveitinn sem Jim er í, var að fá gig!! Þeir eiga að spila á litlum bar í Durham 25 mars, Durham er háskólabærinn á þessu svæði. Ég er svo spennt og það eru svo margar spurningar, til dæmis hverju á ég að vera í?? Á ég að vera í FF bolnum sem ég fékk í jólagjöf eða á ég að vera cool í stígvélum og einhverjum flottum bol!! Hjálp, ég veit ekki hvað ég á að gera!
Hey þið eruð ábyggilega að velta fyrir ykkur hvað ég gerði síðast laugardagskvöld í tilefni Valintínusardagsins. Jim tók mig að sjá BLUE MAN Group og það var ekkert smá gaman. Ég veit ekki hvernig ég á að lýsa því sem ég sá.....þeir eru ótrúlegir á "trommu" hljóðfæri, þeir voru að spila á rör, eins og pípulagninga rör.....svo var svona eiginlega leiksýning líka með músik. Ég get ekki lýst þessu neitt frekar, ef þið eruð forvitinn þá endilega reynið að sjá sýningu með þeim. Þetta var besta sýning sem ég hef séð í langan tíma. Ég hreinlega gapti af undrun þegar ég kom inn í leikhúsið, ég vissi ekki hvað ég var að fara að sjá og salurinn var furðulega skreytur. Jim kom mér virkilega á óvart og ég vona að hann geri það oftar ef það er einhvað í líkindu við þetta :o)
Allavegna þá er allt gott að frétta, er að undirbúa að vera hérna ein í eina viku meðan fjölskyldan er á spáni!! Ég get ekki beðið, þarf bara að fæða hestanna tvisvar á dag og hundinn einu sinni. Jim vill að ég verði hjá honum mest alla vikuna en ég er ekki viss, að keyra 3 tíma á dag (ein og hálfur tími hvora leið) er ekki það freistandi....verð samt einhvað hjá honum. Annars er ég reyndar að fá heimsókn líka, á laugardaginn ætla bróðir hans Jims og kærasta hans að koma og vera eina nótt og svo í næstu viku ætla Sam (vinkona mín frá Ástralíu) og Kimberly (frá Þýskalandi) og vera hjá mér í eina eða tvær nætur. Svo ég á eftir að njóta þess að vakna ekki hálf 6 á morgnanna, passa að allt sé hreint og fínt og síðast en ekki síst að hanga í tölvunni eins mikið og ég vil án þess að hugsa um hvað klukkan sé!!
Jæja verð að fara, klukkan er að verða margt og á eftir að tala við Jim.