Birna

Monday, February 07, 2005

Getiði hvað

Ég er komin með netið í íbúðina mína!! Keypti loksins símalínu og nýja mús.
Ég er svooooo þreytt, það er mánudagur og ég fór seint að sofa í gærkvöldi því það var verið að sýna Super Bowl, það er amerískur fótbolti, úrslitinn voru í gærkvöldi og allir horfa á þetta. Það er frekar flott sýning í hálfleik, í fyrra var berað brjóstið á Janet Jackson en í ár fengu þau Paul McCartney til að vera viss um að það yrði ekki annað hneiksli. Ég skil ekki hvers vegna fólk horfir á amerískan fótbolta, þetta er stútfullt af ofbeldi!! Þeir hreinlega ráðast á hvern annan og kalla það að tækla...ég skil ekki svona villimensku, ég er bara fegin að Jim er ekkert fyrir íþróttir, horfir á úrslitin og ekkert meira. Reyndar líkar okkur báðum við hafnarbolta og fylgumst með því, aðallega bara tveimur liðum. Boston Red Sox, unnu "heimsmeistara" keppnina í fyrsta sinn í 86 ára núna í haust! Fólk segir að Babe Ruth setti bölvun á þá þegar þeir seldu hann til New York Yankee 1918, hann átti víst að hafa sagt að þeir myndu ekki vinna "heimsmeistara" keppnina aftur....en þeir unnu loksins, ég held með þeim því þeir eru ein liðið á þessu svæði sem eru í meistaradeild. Hitt liðið sem Jim fylgist meira með en ég er New York Yankee, þið kannist alveg ábyggilega við merkið þeirra því það er mjög vinsælt hjá íslendingum að vera með gerhúfu með Y iní N. Reyndi að ná í mynd en ég kann það bara ekki, er enn að læra á þetta allt saman :þ
Ég var rosalega myndarleg á laugardaginn og í gær, bakaði nokkrar bollur, maður þarf náttla að sýna þeim okkar hefðir eins og ég er að læra um þeirra. Frændi hans Jims kemst ekki yfir það að við höfum Bolludag (köllum það balls day á ensku). Ég ætla líka að baka nokkrar í dag eða á morgun, fer eftir því hvort ég komist í búð í dag eða ekki. Það tekur mig 35 mín að keyra í næstu góðu búð svo ég fer bara einu sinni í viku, það er jafnframt eini dagurinn sem ég yfirgef pleisið í meira en 20 min. Ég hef svo lítinn tíma eftir að ég er búin að vinna og þanngað til ég þarf að fara að sofa, er leiðinleg og fer að sofa ekki mikið seinna en kl. 10, þarf líka að vakna kl. 5:30 á morgnanna!! Þetta er alveg búið að eyðilegja klukkuna í mér, þegar ég sef út þá vakna ég um kl.9, einstaka sinnum rétt fyrir kl.11 en þá hef ég yfirleitt farið mjög seint að sofa! Mikið rosalega er ég orðin gömul :þ
Úúúú, ég er algör, gleymi að segja ykkur hvað ég er að fara að gera næstu helgi! Eins og þið vitið er Valitínusardagurinn næsta mánudag og í ár ætlum við Jim að halda uppá hann, gerðum það ekki í fyrra því þetta er eiginlega ekki íslenskt fyirbæri. Allavegna þá er Jim búin að skipuleggja einhvað og ég er að drepast úr forvitni!! Það eina sem ég veit er að þetta er einhverskonar sýning, ég á að vera aðeins fínni klædd en venjulega og þetta byrjar klukkan 7 á laugardaginn og að þetta er í Boston!! Ég rakst reyndar á miðanna á skrifborðinu hans Jims um daginn en ég kíkti ekki svo ég veit ekki hvað ég er að fara að sjá. Hann sagði mér að fólki finnst þetta vera skemmtilegt og að þetta sé góð hugmynd, ég er SVO forvitinn. En ég ætla ekki að eyðilegja þetta fyrir honum, er búin að eyðilegja eitt sem átti að vera óvænt....það var alveg óvart!!
Ég held að þetta er nóg í bili, kem seinna í vikunni og skrifa meira, klára þá kannski að segja frá því þegar ég fór til Gerorgiu.

3 Comments:

  • At February 09, 2005, Anonymous Anonymous said…

    Sæl systir góð. Til hamingju með heimasíðuna - rosalega gaman að lesa fréttir og svona :) kv. Laufey

     
  • At February 09, 2005, Anonymous Anonymous said…

    Sæl Birna
    Það eru fleiri sem eru farnir að fylgjast með þér reglulega. Það er mjög gott að vera forvitinn og ef maður væri það ekki þá vissi maður ekki neitt, en reyndu nú að sitja á þér svona allavegana á Valentínusardaginn :).
    Það er eitt sem ég vil benda þér á ef þú ert ekki þegar komin með þetta, þ.e. netsími sem heitir Skype.com, maður einfaldlega downlodar forriti af þeirri síðu og vinir og fjölskylda líka, síðan talar maður frítt í gengum netið, sparar mikla peninga sérstaklega ef talað er á milli landa.
    Bestu kveðjur Eyrún

     
  • At February 14, 2005, Anonymous Anonymous said…

    Flott hjá þér Birna, hvað gerðiru svo sniðugt á Valentínusardaginn?
    Kv. Úlla

     

Post a Comment

<< Home