Sad Little People, by FF
Jæja þá er hlómsveitinn hans Jims búin að taka upp eitt lag!! Það tók ekki nema um fjóra tíma að stilla öllu upp og taka upp. En fyrir þá sem ekki vita þá heitir hljómsveitinn The Fearsome Foursome en þeir kalla sig FF.Hljómsveitina skipa Jim en hann spilar á bassa og gítar, John (bróðir Jims) á gítar og stundum bassa, Pete (frændi hans Jims) á trommur og svo er það Mike (frændi Jims og bróðir Pete) á hljómborð, trompet og einstaka sinnum á bassa! Þeir hafa verið kallaðir FF síðan þeir voru litlir, nákvæmlega frá því að Mike fæddist, þeir nota númer til að aðgreina sig. Númer 1 er Pete en hann er elstur, hann byrjaði að læra á trommur fyrir 2 árum svo þeir gætu stofnað hljómsveit, unnusta hans heitir Vicky og þau trúlofuðu sig rétt fyrir jól og er fyrirhugað brúðkaup í apríl/maí 2006. Númer 2 er Jim, þið þekkið hann, hann hefur spilað á gítar frá því hann var 13 ára, semur líka lög , tók upp bassan síðasta sumar því þeim vantaði bassaleikara, samt skiptast þeir á það fer eiginlega eftir því hvaða lag þeir eru að spila. Númer 3 er John, hann er fáránlega góður gítarleikari og lagahöfundur, hann byrjaði að spila 13 ára, kærastan hans heitir Melinda. Númer 4 er Mike, hann er búin að spila á trompet síðan hann var 12 ára og byrjaði að spila á hljómborð þegar hann fór í háskóla, hann semur líka lög, kærastan hans heitir Lauren. En allavegna þá vitið núna hvað ég er að tala um þegar ég nefni FF :o)
Annars er vikan búin að vera frekar venjuleg fyrir utan það að ég er komin með heimasíma!! Er líka komin með netið um leið og ég kaupi snúru í tölvuna!
En þetta er nóg í bili, ætla að reyna að skrifa meira seinna í dag.
Annars er vikan búin að vera frekar venjuleg fyrir utan það að ég er komin með heimasíma!! Er líka komin með netið um leið og ég kaupi snúru í tölvuna!
En þetta er nóg í bili, ætla að reyna að skrifa meira seinna í dag.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home