Mig hlakkar til
Á morgun er ég að fara að hitta pabba minn í fyrsta sinn í 6 mánuði!! Fæ reyndar bara að sjá hann í 2 tíma eða svo en það er í lagi. Hann er að millilenda í Boston á leið til Flórída. Hann er með pakka til mín með páskaeggi nr. 5 frá Nóa Síríus!!! Svo fæ ég afmælisgjöf frá systur minni, veit samt ekki hvað það er :o) Mamma minnti mig á það uum daginn að ég á afmæli eftir u.þ.b. 3 vikur. Ég er að verða 23 ára, hvert fór árið! En annars er lítið að frétta, er að reyna að fá sjálfboðavinnu í grunnskóla og svo fer ég í skóla í maí. Ætla að taka ritunar ensku, þarf víst að skrifa nokkrar ritgerðir og lesa einhverjar bækur. En nóg í bili, þarf að drífa mig svo Jim komist á æfingu á tíma.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home