Birna

Wednesday, April 20, 2005

Ég er búin að kaupa miða!!

Ég og Jim keyptum miða til Íslands á sunnudaginn fyrir viku! Við flugum héðan laugardaginn 30 júlí og lendum á Íslandi klukkan 6:30 á sunnudagsmorgun 31 júlí (verslunnarmannahelginn), við flugum aftur hingað mánudaginn 15 ágúst eftir hádegi :o) Þá er bara að fara að skipuleggja ferðalagið, við ætlum að fara norður til ömmu í 3 daga, Jim ætlar að versla íslenskar bækur og ég ætla að njóta þess að hitta alla aftur og fá að heyra allt slúðrið sem er búið að vera í gangi síðan ég fór.
Fyrir utan að vera rosalega spennt að vera búin að kaupa miða til Íslands þá átti ég rosalega góða afmælishelgi. Við Jim fórum á rosalega sjarmerandi og rómantískt veitingahús á föstudagskvöldinu. Á laugardeginum vöknuðum við snemma til að vera í Boston um hádegið því við áttum miða í "Andarferð" (Duck Tour), þetta er ferð sem fer um Boston í svona bílbát því hluti af ferðinni er að sigla í ánni í Boston. Jim fékk að keyra bátinn/bílinn og fékk límmiða í verlaun :o) En eftir ferðina fórum við á aðalverslunnargötuna í Boston og fundum franskt veitingahús og ákváðum að fá okkur einhvað gott í gogginn. Ég fékk mér samloku en Jim ákvað að fá sér humar ravioli, það var næstum það dýrasta á matseðlinum og hann fékk bara 5 litla bita á meðan ég fékk mér stóra samloku fyrir næstum helminginn af því sem pastað kostaði. Þetta kennir okkur að spurja í framtíðinni hvað þú færð mikið eða einfaldlega halda sér við einhvað sem þú veist að verður mikið!!
En ég verð að fara aftur að vinna, hestarnir bíða eftir að verða burstaðir og að ég hreinsi skítinn eftir þá. Gleymdi næstum er að byrja í skóla eftir 2 vikur, verða á kvöldinn tvisvar í viku að læra english composition 1. Segi ykkur betur um það seinna. Bæ í bili og gleðilegt sumar :þ

Friday, April 08, 2005

Ég á afmæli :o)

Jæja þetta verður fyrsta afmæli mitt þar sem ég er annars staðar en á Íslandi. Það er frekar skrítið að hugsa um það að þetta verður allt öðru vísi en venjulega þegar ég á afmæli! Venjulega bíð ég vinum í mat eða party en núna fer ég fínt út að borða með Jim og kannski bróður hans og kærustu. Ég keypti mér rosalega sæta skó síðustu helgi, þeir eru ljósbleikir með opna tá, allavegna þá ætla ég að vera í þeim og einhverju bleikum bol og annað hvort pilsi eða buxum (það fer eftir veðri, það er að verða betra með hverjum degi)!!
Ég segi ykkur hvernig fór um helgina, O.C. var að byrja og það er með einu þáttunum sem ég horfi á :o)

Sunday, April 03, 2005

Leti sunnudagur

Núna liggur maður bara í leti, það er búið að rigna alla helgina og snjórinn er farinn fyrir utan stærstu skaflanna :o) En ykkur langar ábyggilega að vita hvernig strákunum gekk að spila á föstudaginn fyrir viku. Þeim gekk mjög vel, þetta var mjög vel gert hjá þeim. Staðurinn var frekar fullur og allir virtust skemmta sér vel. Eftir giggið þá komu flest allir vinir þeirra hingað og og margir gistu, ég hef aldrei séð þessa íbúð jafn fulla af fólki. Við vorum 12 sem sváfum hérna, við erum venjulega 4 í íbúðinni en það voru extra 8 sem þurftu svefnpláss, sem betrur fer er íbúðin á tveimur hæðum!!
En allavegna þá voru páskarnir frekar rólegir og ég naut og nýt enn þá páskaeggsins sem ég fékk sent frá Íslandi. Ég kemst ekki yfir það hvað Nói Siríus er alltaf góður, eggin hérna eru ekkert sérstök!! Það sem þau kalla mjólkursúkkulaði er einginlega venjulegt súkkulaði (ekkt ljóst og ekki dökkt). En mamma Jims gaf mér risa páskakörfu með bókum, hvítvíni og fullt af nammi. Ég var afvelta á sunnudagskvöldið síðasta eftir allt nammiátið og matinn!
En núna ætla ég að vera dugleg og taka mig á fyrir sumarið svo ég geti látið sjá mig í sundfötum. Það verður rosalega heitt hérna á sumrinn, fer upp í 40c daginn og sumar nætur eru svo heitar að þú sefur í svitabaði!! Ég er nú ekkert rosalega spennt fyrir að geta ekki sofið fyrir hita en sólinn kallar á hvíta húðina sem er farinn að engja í smá lit :o) Ég er akkúrat að reyna að leita mér af stuttbuxum og einhverjum pilsum til að geta verið í í sumar. Fólki finnst það nú bara skrítið að ég eigi ekki stuttbuxur! Þá spyr ég það hvort það sé vit í að eiga einhvað sem þú aldrei notar! En allavegna þá fór ég í þessa rosalegu verslunnarferð í gær og ætlaði nú aldeilis að kaupa mér föt og sandala en auðvitað enda ég bara uppi með sólgleraugu! Ég ætla að kíkja í aðrar búðir í dag meðan strákarnir eru að æfa, langar að finna mér einhverja sæta bleika skó fyrir afmælið mitt sem er næsta föstudag.... ég var alveg búin að gleyma því þar til mamma hringdi fyrir um 2 vikur til að minna mig á það! Maður gleymir alveg hvað tímanum líður, mér finnst eins og árið var að byrja og það var svo langt til sumarsins sem er bara rétt handan við hornið núna.
En allavegna þá þarf ég að fara að koma mér, þýðir ekkert að vera í náttfötum í allan dag þegar maður hefur tækifæri til að fara að versla :o)