Leti sunnudagur
Núna liggur maður bara í leti, það er búið að rigna alla helgina og snjórinn er farinn fyrir utan stærstu skaflanna :o) En ykkur langar ábyggilega að vita hvernig strákunum gekk að spila á föstudaginn fyrir viku. Þeim gekk mjög vel, þetta var mjög vel gert hjá þeim. Staðurinn var frekar fullur og allir virtust skemmta sér vel. Eftir giggið þá komu flest allir vinir þeirra hingað og og margir gistu, ég hef aldrei séð þessa íbúð jafn fulla af fólki. Við vorum 12 sem sváfum hérna, við erum venjulega 4 í íbúðinni en það voru extra 8 sem þurftu svefnpláss, sem betrur fer er íbúðin á tveimur hæðum!!
En allavegna þá voru páskarnir frekar rólegir og ég naut og nýt enn þá páskaeggsins sem ég fékk sent frá Íslandi. Ég kemst ekki yfir það hvað Nói Siríus er alltaf góður, eggin hérna eru ekkert sérstök!! Það sem þau kalla mjólkursúkkulaði er einginlega venjulegt súkkulaði (ekkt ljóst og ekki dökkt). En mamma Jims gaf mér risa páskakörfu með bókum, hvítvíni og fullt af nammi. Ég var afvelta á sunnudagskvöldið síðasta eftir allt nammiátið og matinn!
En núna ætla ég að vera dugleg og taka mig á fyrir sumarið svo ég geti látið sjá mig í sundfötum. Það verður rosalega heitt hérna á sumrinn, fer upp í 40c daginn og sumar nætur eru svo heitar að þú sefur í svitabaði!! Ég er nú ekkert rosalega spennt fyrir að geta ekki sofið fyrir hita en sólinn kallar á hvíta húðina sem er farinn að engja í smá lit :o) Ég er akkúrat að reyna að leita mér af stuttbuxum og einhverjum pilsum til að geta verið í í sumar. Fólki finnst það nú bara skrítið að ég eigi ekki stuttbuxur! Þá spyr ég það hvort það sé vit í að eiga einhvað sem þú aldrei notar! En allavegna þá fór ég í þessa rosalegu verslunnarferð í gær og ætlaði nú aldeilis að kaupa mér föt og sandala en auðvitað enda ég bara uppi með sólgleraugu! Ég ætla að kíkja í aðrar búðir í dag meðan strákarnir eru að æfa, langar að finna mér einhverja sæta bleika skó fyrir afmælið mitt sem er næsta föstudag.... ég var alveg búin að gleyma því þar til mamma hringdi fyrir um 2 vikur til að minna mig á það! Maður gleymir alveg hvað tímanum líður, mér finnst eins og árið var að byrja og það var svo langt til sumarsins sem er bara rétt handan við hornið núna.
En allavegna þá þarf ég að fara að koma mér, þýðir ekkert að vera í náttfötum í allan dag þegar maður hefur tækifæri til að fara að versla :o)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home