Birna

Monday, May 02, 2005

Byrja á morgun

Jæja þá byrjar maður í skólanum á morgun. Er með smá knút í maganum en held að ég eigi alveg eftir að ráða við þetta. Fór á kynningu í síðustu viku og ég er ekki sú eina sem er að byrja aftur í skóla eftir hlé og svo er þetta líka fyrsta College/háskóla námskeiðið sem ég tek! Ég er búin að fá báðar bækurnar mínar, pantaði þær á netinu og fékk þær helmingi ódýrari en skólinn var að selja þær á. Gamla skólatakan er alveg tilbúin og búin að athuga alla penna og blýanta til að allt gangi nú vel þegar ég mæti í fyrsta tímann :o)
En allavegna er allt gott að frétta, Jim og hljómsveitin hans voru með einhverskonar fjáröflun til að bjarga Darfur. Það er land í Súdan, það er víst mikið um manndráp og einhvað. Þið verðið að afsaka hvað ég veit lítið, er ekkert inní heimsfréttunum nú orðið. Reyni nú alltaf samt að horfa á íslenskar fréttir um helgar hjá Jim því hann er með betri tölvu en ég!
Jæja hef nú ekkert meira að segja því það hefur ekkert merkilegt gerst síðustu daga.En frændi hans Jims er að útskrifast næstu helgi og svo kærasta bróður Jims tveimur helgum eftir það. Það verður gaman að sjá útskrift úr Bandarískum háskóla og hvernig hefðir þau eru með hérna! Segi ykkur allt um það seinna, bæ og hafð það sem allra best :o)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home