Birna

Friday, May 27, 2005

Mikið að gera!

Fyrirgefið, ég er ekki búin að vera dugleg að skrifa. Ég er búin að vera frekar upptekinn. Er búin að fara í tvær útskriftir og er að fara í eina enn eftir tvær vikur. Svo er ég í skólanum alveg á fullu, fékk A fyrir fyrstu ritgerðina mína. Er ekkert smá ánægð. Skilaði ritgerð nr. 2 síðast þriðjudag og svo var ég í miðs násannar prófi áðan og ég held að mér hafi gengið alveg ágætlega :o)
Ég og Jim hættum saman um daginn, erum samt enn vinir. Hittumst enn um helgar og ætlum að reyna að ferðast einhvað saman í sumar. Við erum til dæmis að fara saman til Montreal eftir rúma viku í helgarferð. Svo komum við saman til Íslands í ágúst. Hann ætlar reyndar að ferðast einn á Íslandi svo ég geti hitt alla of notið þess að vera með fjölskyldu og vinum í tvær vikur!! Mér hlakkar ekkert smá til að koma heim í heimsókn og hitta alla :o)
Þótt við Jim erum hætt saman þá ætla ég að vera hérna í annað ár. Ég er að reyna að fara til nýrra fjölskyldu í Californíu, ætla að vera í sólinni í eitt ár :o) Ég veit nebbla ekki hvað ég vil, svo þess vegna ætla ég að vera áfram til að finna hvað mig langar að gera þegar ég kem heim. Mig langar til að ferðast um Evrópu þegar ég kem heim, það er það eina sem ég veit! Þetta kemur allt saman í ljós með tímanum.
En verð að fara núna, lofa að skrifa fljótlega aftur. Var að koma úr skólanum og er frekar þreyt. Vona að þið njótið góða veðsins! Það er rigning og rok hérna og hefur einsta sinnum verið gott á milli. Hafið það sem allra best ('',)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home