Montreal, framhald
Jæja, við fórum á sögusafnið, það var allt í lagi. Það var tvennt sem mér fannst mest merkilegt, video um sögu Montreal og rústir frá fyrstu húsunum í Montreal. Eftir að við vorum búin að skoða allt þá vildi Jim fara á listasafnið, mig langaði líka því þeir voru að sýna Monet, Picasso og fleiri fræga listmálara. Jim vildi labba frá gamla bænum tl listasafnins, "það tekur aðeins lengra að labba en að fara með neðarjarðarlest" sagði hann. Það tók okkur næstum 45 mín að labba og ég var að drepast úr þreytu og ég þyrst og hitin að drepa mig, það var 25-30 stig. Þegar við loksins komum þanngað þá var safninu ný lokað, lokaði klukkan 6 en við vorum þarna um 6:25.
Við ákváðum að fara á hótelið til að skipta um föt og hvíla okkur aðeins fyrir kvöldið. Við vorum bæði þreytt á að labba svo við tókum neðarjarðarlest, þurftum samt að labba smá spöl frá lestastopistöðinni til hótelsins.
Þegar við vorum búin að fara í sturtu og komin í hrein föt var ferðinni heitið í hinn endan á bænum, ætluðum á veitigastað rétt hjá listasafninu. Við fórum á Ástralst veitingahús og ég fékk mér pasta en Jim var ekki svangur því hann át samloku sem hann átti á hótelherberginu, hann fékk sér tvo drykki sem kostuðu aðeins meira en maturinn minn!! Áfengi er rosalega dýrt þarna, erum ekki vön því því það kostar svo lítið að hérna. Eftir að Jim var komin yfir sjokkið sem hann fékk þá langaði honum að kaupa Kúbeskan vindil, hann fékk sér einn lítin sem kostaði ekki svo mikið. Þegar það var búið langði okkur eiginlega ekki að gera neitt svo við ákváðum að labba heim á hótelið, tók um 40-45 mín. Við sáum margt áhugavert á leiðinni, sáum neðarjarðarverslunarmiðstöðina, ýmsa bíla sem gætu verið úr Fast and the Furies, einn jeppinn sem við sáum var með sjónvarpsskái allstaðar inní bílnum. Sáum einhverja stráka rúlla upp jónu (hasssígarettu) og svo má ég ekki gleyma stelpunni sem gaf einhverjum strák blowjob fyrir framan lögreglustöð bakvið hótelið okkar!!
Daginn eftir fórum við á frábæran veitingastað til að fá morgunmat, fengum egg, ristað brauð, ferskan appelsínusafa og rosalega góða ferska ávexti. Eftir morgunmatinn fórum við á listasafnið, þau eru reyndar tvö. Fyrsta var ekkert merkilegt svo við fórum á hitt og sáum frábært listaverk. Ég sá þrjú málverk eftir Picasso, það var ótrúlega skrítið að sitja fyrir framan þau og dást af þeim. Maður hefur heyrt svo mikið um málverkin hans og ég á eftir prent af einu, en að sjá alvöru málverk eftir hann er eins og að gamall draumur frá því ég var 14 ára hafi loksins ræst. Það voru fleiri fræg málverk þarna og ég skoðaði þau og heilaðist af þeim en Picasso átti mig alla meðan ég var þarna, að sjá málingarstokurnar og hvernig hann blandaði litum og reyna að ímynda sér hvað hann hugsaði meðan hann var að mála. Ég ætla að taka upp á því að teikna aftur, sjá hvernig mér gengur og kannski taka eitt námskeið í haust.
Svo það er óhætt að segja að við áttum viðburðarríka helgi og ég vona að ég geti farið þanngað aftur til að skoða meira. Þetta er frábær borg og ef einhver hefur tækifæri tl að sjá hana þá mæli ég með henni.
Ég reyni að skrifa meira fljótlega og segi ykkur hvað er búið að vera að gerast síðustu vikur. Bæ í bili :o)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home