Birna

Monday, June 13, 2005

Montreal, Kanada

Já ég veit, ég er algör en ég er búin að vera mjög upptekin. Skólinn verður búin í næstu viku svo ég er að drukkna í heimanámi og ritgerðum. Vonadi verð ég betri þegar hægist um hjá mér.
En allavegna þá fór ég til Montreal helgina 3 til 5 júní og var sú ferð alveg frábær. Jim fór með mér og við löbbuðum út um allt, ég var í flippflop sandölum og þeir eru nú ekkert rosalega þægilegir í langar göngur en við löbbuðum tvisvar eða þrisvar í 40 til 45 mín. Við komum frekar seinnt á föstudagskvöldi, hentum töskunum inn í hótelherbergið okkar og fórum að kanna barina. eftir að hafa labbað fram og til baka á sömu götunni (aðalgötunni, þar sem flest allt er) þá fundum við roaslega flottan Jazz bar, fengum okkur einn Kanadískan bjór og heldum áfram. Jim vildi fara á einhvern svkalegasta þungarokkabar sem ég hef séð á ævi minni, ég var svolítið hrædd við liðið þarna inni. Þau voru öll með brodda hár og svakalega málingu og fatnaðurinn var nú ekkert alltof mikil hjá sumum! En við fórum þarna inn og fengum okkur bjór og ég ríg hélt í veskið mitt allan tíman.
Laugardagurinn byrgjaði snema því við fórum í leiðsuguferð um Montreal með leiðsögumanni, var innifalið í ferðinni. Við fórum í Notre Dame Basillica, Celine Dion gifti sig þar. Þetta var ekkert smá flott kirkja, tók mjög góðar myndir (vona ég). Eftir ferðina fórum við á ítalskt veitingahús og fengum mjög góðan hádegismat, eða allavegna ég, Jim fékk sér franskar. Þegar við vorum orðin södd var ferðinni heitið á Sögusafn Montreals, ætla að skrifa ritgerð um sögu Montreal, fæ 3 einingar fyrir það og uppfylli sem sagt allar kröfur sem Au Pair.
o ég verða að fara, klára að skrifa í kvöld :o)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home