Birna

Saturday, July 30, 2005

Kem á morgun!!

Góðan daginn, klukkan er 7:50 á laugardagsmorgni. Ég vaknaði fyrir uþb klukkutíma, ég get ekki sofið úr spenningi. Ég er að koma heim í fyrsta sinn í 10 og hálfan mánuð!!
Ég legg af stað héðan um klukkan 3 eftir hádegi og verð komin upp á völl um 5 leitið. Vélin fer svo í loftið 9:30 og ég lendi 6:30 í fyrramálið :o)
Ég er að rembast við að koma öllu í töskurnar sem ég hef. Er að koma með ótrúlega mikið dót sem ég þarf að nota í Californíu eins og flest öll vetrarfötin mín og svo er á ég bara svo mikið dót sem ég hef safnað að mér síðan ég kom hingað.
En ég þarf að fara, er frekar svöng. Ég sé flest af ykkur bráðlega og hafið það sem allra best um helgina :o)

Thursday, July 28, 2005

San Fransico, Californía

Ég er búin að fá nýja fjölskyldu fyrir næsta ár, ég flyt u.þ.b. 30 mílur fyrir utan San Fransico í Californíu :o) Ég flyt nákvæmlega 5 vikum eftir að ég kem heim, mánudaginn 19 september.
Ef þið hafið áhuga að vita hvar ég verð þá er hérna kort. Ég mun búa þar sem rauða stjarnar er og þið geti súmað út og inn til að sjá betur: http://www.mapquest.com/maps/map.adp?formtype=address&searchtype=address&country=US&addtohistory=&1ahXX=&address=248+Searsville+Rd&city=Stanford&state=CA&zipcode=94305-4108

Ég verð hjá einstæðri móður með tvo stráka, 8 og 12 ára (hann verður 13 ára í okt.). Hún vinnur á spítala hjá Stanford University, hún vinur við rannsóknir og heldur fyrirlestra. Hún er læknir, taugasjúkdómafræðingur ef ég á að vera nákvæm.

Ég verð að fara, þarf að pakka því ég flý heim á laugardaginn!!! Lendi á klakanum klukkan hálf 7 á sunnudagsmorgun :o)
Þangað til seinna, bæjó

Monday, July 18, 2005

Ævintýri

Úff, þá er ég loksins búin að senda inn ritgerðina fyrir Montreal!! Núna get ég slappað af smá, þarf samt að taka bílpróf hérna áður en ég kem heim. Þarf að lesa einhverja bók og taka skriflegtpróf og keyra með prófdómara. Þetta verður ábyggilega ekkert mál, eða það vona ég :o)
Ég verð að segja ykkur frá ótrúlegu ævintæýri sem ég lenti í um síðustu helgi, helgina 8-10 júlí. Sam og Katja komu til mín og voru hérna alla helgina. Á föstudagskvöldið vorum við búnar að mæla okkur mót við vinkonu okkar sem býr rétt hjá mér, hún heitir Kimberly og er frá Þýskalandi og hún er að fara heim núna á fimmtudaginn :'( En allavegna þá náðum við í hana og fórum í bíó, við ætluðum að sjá Bewitched en hún var byrjuð svo við ákváðum að sjá War of the Worlds. Hún er ótrúlega góð!! Ég var með hjatað í buxunum og var að pissa á mig úr spenningi stundum. En í byrjun á myndinni þá eru þrumur og allir bílarnir á svæðinu hætta að virka. Ég sagði við Sam vinkonu mína að ég myndi sko ekki langa til að bílinn minn skildi hætta að virka allt í einu!! Hvað haldiði að komi fyrir á leiðinni heim í rigningu og klukkan að verða hálf 2 um morguninn. Það er rafmagnsmælir í bílum og hann byrjar að fara niður, bensínmælirinn fer líka niður, öll ljós í og á bílnum byrja að blikka og svo punturinn yfir i er að bílinn byrjar að hristast rosalega og loksins draps á bílnum. Ég fríkaði út, ef það hefðu verið þrumur hefði ég pssað á mig úr hræðslu. Ég hringi í eldri stelpuna því ég vissi að hún myndi vera vakandi, hún var búin að drekka 2 bjóra svo ég hringdi í konuna sem ég vinn hjá og bið hana að koma og ná í okkur. Við náðum að koma bílnum í öruggt stæði með því að stopa með 2 mínútu milli bili. Við stóðum úti við bensínstöð í meira en hálf tíma svo hún myndi sjá okkur þegar hún kæmi. Það er gaman að hafa smá spennu í lífinu en þetta var næstum of mikið fyrir minn smekk því fyrr um kvöldið rifnuðu gallabuxurnar sem ég var í og þurfti því að hafa jakkan utan um mig. Hún kom 20 minútur yfir 2 um nóttina og ég fór loksins að sofa rétt fyrir hálf 4, vakna um klukkan 7 alla virka daga svo ég var mjög þreytt þegar ég fór loksins uppí rúm.
Ég þarf ekki meira í bili því hjartað í mér hamast enn þegar ég hugsa um þetta kvöld. Bílinn var fluttur í burt daginn eftir á verkstæði, það eina sem var að var að snúra á milli vélarinnar og batterísins var slitin og því náði batteríið ekki að hlaðast og bílinn getur víst ekki virkað án rafmagns. Ég fékk bílinn aftur á þriðjudagskvöldið sem betur fer :o)
Jæja er fekar þreytt eftir helgina og langar að fara að sofa, ég ætla að skrifa ævintýri þessara helgar upp á morgun.
Og já eitt enn, kem heim eftir 13 daga!!

Thursday, July 07, 2005

4 júlí

Jæja þá er skólin búin (klárði 25 júní) og ég fékk 95, stundum kallað A hérna :o)!!! Ég er ótrúlega stolt af mér. Þetta var mikil vinna og var oft í vafa hvort ég gæti þetta, en ég kláraði með góða einkunn og langar að fara aftur í skóla því þetta var rosalega gaman. Ég saknaði þess eiginlega að fara ekki í skólan í síðustu viku, það var gaman að fara einhvert ákveðið í hverri viku og spjalla við missmunandi fólk um alskonar hluti. Kennarinn minn var æðislegur, hann kennir allt öðruvísi en ég er vön og það var gaman að kynnast einhverju nýju. Núna á ég bara eftir að klára ritgerðina sem ég þarf að gera um ferðina til Montreal, átti að senda hana í síðustu viku en fékk nokkra auka daga.
Alla vegna þá er allt gott að frétta af mér. Ég hef nóg að gera, er að koma heim eftir 24 daga (byrjaði að telja niður í dag). Ég er byrjuð að leita af nýrri fjölskyldu og er búin að vera að tala við eina sem býr í Seattle, Washington ríki. Líkar vel við hana en áður en ég tek ákvöðrun vil ég tala við fleiri fjölskyldur.
Annað að frétta er að við Jim erum ekki lengur vinir, hann gat ekki verið vinur minn því við vorum saman einu sinni. Allavegna þá er ég svolítið fegin því þetta að vera vinir var stundum erfitt og núna get ég gert það sem ég vil en ekki hvað Jim langar að gera.
Ég var hjá Sam vinkonu minni alla helgina, það var þjóðhátíðardagur Bandaríkjamanna síðasta mánudag, 4 júlí svo ég var í 3 daga helgarfríi. Við erum brálaðar í margarítur núna því það er svo svaladi í þessum hita. Á föstudagin vorum við heima hjá henni og slöppuðum af eftir vikuna með margarítu. Á laugardaginn fórum við í hella sem eru kallaðir Polar Caves, þetta er einhvernskonar bland af hellum í fjalli, skógi og andartjörn. Það var samt gaman að fara einhvert og skoða sig um og við vorum með nesti og skemmtum okkur mjög vel. Vorum reyndar svolítið þreyttar á öllu labbinu og vorum smá stirðar á sunnudaginn. Höfðum það notalegt á laugardagskvöldið með video og Katja (au pair frá Rússlandi sem við þekkjum) var með okkur.
Á sunnudaginn var ferðinni heitið á ströndina, höfum ekki farið í allt sumar svo það var komin tími til. Ég keypti mér þetta rosalega flotta bikíní fyrir u.þ.b. 1100 kr. og setti fullt af sólarvörn á mig. Þegar við vorum búnar að baka okkur í smá tíma vildi Katja spila á venjuleg spil og ég settist upp með bakið í sólina! Hvað haldið þið, ég brendist auðvitað, en það var ekkert mikið og það er næstum allt farið. Sunnudagskvöædið var líka rólegt, horfðum á video og fengum okkur bestu boritos sem ég hef smakkað á ævi minni. Þetta eru ekta boritos, þær eru ekkert rosalega stórar en maður verður rosalega saddur af einni og svo eru þær ekki dýrar! Og auðvitað besti drykkurinn með góðri boritos er frosin margarinta :o)
Á mánudaginn, 4 júlí fórum við til Boston og löbbuðum útum allt! Við áttum rosalega afslappaðan dag og sáum mikið af götulistamönnum. Það var einn götulistamaður sem er flóttasnillingur eða einhvað í þá áttina og hann bað mig um að hjálpa sér!! Ég ætlaði ekki að trúa honum fyrst en hann var að benda á mig svo ég fór til hans ásamt einhverjum strák til að aðstoða hann. Við áttum að klæða hann í svona geðveikrajakka, hann er reimaður fyrir aftan bak og svo eru hendurnar settar í kross og bundnar saman fyrir aftan bak líka. Þegar hann var komin í jakkan þá vildi hann að við bindum 75 metra langan kaðal utan um hann, ég bat nokkra góða hnúta. En einhvern vegin komst hann úr þessu öllu með því að snúa öxlinni á einhver sérstakan hátt. Þetta var ekkert smá gaman og að vera hluti af þessu öllu gerði þetta enn betra. Eftir að við vorum búnar að gefa honum sitt hvorn dollarann þá heldum við áfram og sáum u.þ.b. 12 svarta stráka breika, þeir voru frá Broklyn New York og voru ekkert smá góðir. Þeir voru að gera alskonar kúnstir með því að snú höfðinu og standa á einni hendi og felira sem ég veit ekki hvernig ég á að fara að því að lýsa.
En núna verð ég að fara því klukkan er margt og ég verð að fara að sofa. Ég skrifa fljótlega aftur.