Birna

Thursday, July 07, 2005

4 júlí

Jæja þá er skólin búin (klárði 25 júní) og ég fékk 95, stundum kallað A hérna :o)!!! Ég er ótrúlega stolt af mér. Þetta var mikil vinna og var oft í vafa hvort ég gæti þetta, en ég kláraði með góða einkunn og langar að fara aftur í skóla því þetta var rosalega gaman. Ég saknaði þess eiginlega að fara ekki í skólan í síðustu viku, það var gaman að fara einhvert ákveðið í hverri viku og spjalla við missmunandi fólk um alskonar hluti. Kennarinn minn var æðislegur, hann kennir allt öðruvísi en ég er vön og það var gaman að kynnast einhverju nýju. Núna á ég bara eftir að klára ritgerðina sem ég þarf að gera um ferðina til Montreal, átti að senda hana í síðustu viku en fékk nokkra auka daga.
Alla vegna þá er allt gott að frétta af mér. Ég hef nóg að gera, er að koma heim eftir 24 daga (byrjaði að telja niður í dag). Ég er byrjuð að leita af nýrri fjölskyldu og er búin að vera að tala við eina sem býr í Seattle, Washington ríki. Líkar vel við hana en áður en ég tek ákvöðrun vil ég tala við fleiri fjölskyldur.
Annað að frétta er að við Jim erum ekki lengur vinir, hann gat ekki verið vinur minn því við vorum saman einu sinni. Allavegna þá er ég svolítið fegin því þetta að vera vinir var stundum erfitt og núna get ég gert það sem ég vil en ekki hvað Jim langar að gera.
Ég var hjá Sam vinkonu minni alla helgina, það var þjóðhátíðardagur Bandaríkjamanna síðasta mánudag, 4 júlí svo ég var í 3 daga helgarfríi. Við erum brálaðar í margarítur núna því það er svo svaladi í þessum hita. Á föstudagin vorum við heima hjá henni og slöppuðum af eftir vikuna með margarítu. Á laugardaginn fórum við í hella sem eru kallaðir Polar Caves, þetta er einhvernskonar bland af hellum í fjalli, skógi og andartjörn. Það var samt gaman að fara einhvert og skoða sig um og við vorum með nesti og skemmtum okkur mjög vel. Vorum reyndar svolítið þreyttar á öllu labbinu og vorum smá stirðar á sunnudaginn. Höfðum það notalegt á laugardagskvöldið með video og Katja (au pair frá Rússlandi sem við þekkjum) var með okkur.
Á sunnudaginn var ferðinni heitið á ströndina, höfum ekki farið í allt sumar svo það var komin tími til. Ég keypti mér þetta rosalega flotta bikíní fyrir u.þ.b. 1100 kr. og setti fullt af sólarvörn á mig. Þegar við vorum búnar að baka okkur í smá tíma vildi Katja spila á venjuleg spil og ég settist upp með bakið í sólina! Hvað haldið þið, ég brendist auðvitað, en það var ekkert mikið og það er næstum allt farið. Sunnudagskvöædið var líka rólegt, horfðum á video og fengum okkur bestu boritos sem ég hef smakkað á ævi minni. Þetta eru ekta boritos, þær eru ekkert rosalega stórar en maður verður rosalega saddur af einni og svo eru þær ekki dýrar! Og auðvitað besti drykkurinn með góðri boritos er frosin margarinta :o)
Á mánudaginn, 4 júlí fórum við til Boston og löbbuðum útum allt! Við áttum rosalega afslappaðan dag og sáum mikið af götulistamönnum. Það var einn götulistamaður sem er flóttasnillingur eða einhvað í þá áttina og hann bað mig um að hjálpa sér!! Ég ætlaði ekki að trúa honum fyrst en hann var að benda á mig svo ég fór til hans ásamt einhverjum strák til að aðstoða hann. Við áttum að klæða hann í svona geðveikrajakka, hann er reimaður fyrir aftan bak og svo eru hendurnar settar í kross og bundnar saman fyrir aftan bak líka. Þegar hann var komin í jakkan þá vildi hann að við bindum 75 metra langan kaðal utan um hann, ég bat nokkra góða hnúta. En einhvern vegin komst hann úr þessu öllu með því að snúa öxlinni á einhver sérstakan hátt. Þetta var ekkert smá gaman og að vera hluti af þessu öllu gerði þetta enn betra. Eftir að við vorum búnar að gefa honum sitt hvorn dollarann þá heldum við áfram og sáum u.þ.b. 12 svarta stráka breika, þeir voru frá Broklyn New York og voru ekkert smá góðir. Þeir voru að gera alskonar kúnstir með því að snú höfðinu og standa á einni hendi og felira sem ég veit ekki hvernig ég á að fara að því að lýsa.
En núna verð ég að fara því klukkan er margt og ég verð að fara að sofa. Ég skrifa fljótlega aftur.

2 Comments:

  • At July 08, 2005, Anonymous Anonymous said…

    Úuu það er ekkert smá gaman að heyra hvað það er skemmtilegt hjá þér! Og eitt; svona "geðveikrajakki" heitir spennitreyja á íslensku! :)

     
  • At July 09, 2005, Anonymous Anonymous said…

    Takk takk, ég gat ekki munað hvað jakkin heitir svo ég skrifaði einhvað sem að allir skilja.

     

Post a Comment

<< Home