Fisher Cats
Það er alltaf líf og fjör hérna hjá mér þessa daganna. Sam vinkona mín bauð mér á hafnarbolta leik með New Hampshire Fisher Cats síðasta þriðjudagskvöld. Hún vann 4 miða meðan ég var heima í fríi, svo hún bauð mér, yngri stelpunni minni og svo tók hún mið stelpuna sína með sér. Við hittumst í mollinu sem er ekki langt frá hafnaboltavellinum og fengum okkur að borða. Allavegna þá vorum við í bæ/borg sem heitir Manchester, ég rata smá þarna og Sam eiginlega ekkert. Við vorum sem sagt að leita að þessari götu og höfðum ömurlegar leiðbeiningar frá pabba selpurnar hennar Sams. Eftir að við vorum búnar að keyra í þó nokkurn tíma og búnar að villast einu sinni ákváðum við að ég færi inn á næstu bensínstöð til að fá leiðbeiningar, við finnum eina og ég fæ leiðbeiningar um að fara útaf bílastæðinu til vinstri og svo á næstu ljósum itl vinstri. Munið ða ég og Sam erum ekkert of klára hvar við erum svo við förum útaf bílastæðinu sem bæðuvei hefur tvo útganga, við völdum þann sem var einstefna og keyrum óvart á móti umferð í smá tíma :o) Leiðréttum þetta mjög fljót þó og fundum rétta leið og völlinn. Við rétt náðum að setjast niður þegar þjóðsöngurinn var sunginn og svo byrjaði leikurinn, hann var ekkert of spennandi núna því við rústuðum hinu liðinu :o)
Annars er lítið að frétta, fór út að borða með Jim í gærkvöldi, áttum inneign á humar veitingahús sme við fengum í jólagjöf frá pabba hans. Við vorum líka eiginlega að halda upp á afmælið hans sem er í næstu viku, mamma ef þú ert að lesa þetta þá var hann rosalega hrifinn af ljóðabókinni sem ég gaf honum.
Úps verð því miður að fara, er að fara í helgarfrí eins og um hverja helgi en þarf að klára að vinna fyrst. Skrifa aftur fljótlega :o)