Fríið búið :(
Jæja þá er maður komin aftur út og ég byrjaði að vinna aftur í morgun! Húsið var ekki í eins miklu rústi og ég hélt það yrði. Það var auðvitað mikill þvottur og mikið ónýt í ísskápnum, fann afganga síðan í vikunni áður en ég fór út!! Frekar ógeðslegt en skiljanlegt þar sem engin var heima í viku og svo hafa þau ekki haft tíma í neitt.
Þegar ég kom heim í gærkvöldi var fullt af pósti til mín, mikið frá Au Pair in America. Ég var að fá sent nýju Visa papíranna svo ég get verið hérna í annað ár og svo fékk ég upplýsingar og miða í flugið til Californíu. Ég flýg þriðjudaginn 20 september klukkan 7:02 um morguninn!!! Hvernig á ég að fara að því að vera þarna um klukkan 5 um morguninn! þarf að vakna um hálf 3 og fara í sturtu og leggja af stað héðan um 4!! Þetta á eftir að verða strembið og svo verð ég ábyggilega hálf sofandi þegar ég hitti alla í fyrsta sinn..Rosalega góð fyrstu kynni eða þannig! En þetta reddast ábyggilega allt saman og ég verð ábyggilega of spennt til að sofa hvort sem er (eða það vona ég).
Annars er allt gott af mér að frétta, átti mjög notalegt flug til baka. Jim var víst annar til að skrá sig inn í flugið og þar sem við vorum með sömu bókun að þá tók hann sæti fyrir mig líka. Við fengum fyrstu farrýmar sæti, það var bara fært tjaldið á milli til að skilja að fyrsta farrými og almennings. Þannig að það var mjög gott að geta teigt úr sér alla leiðina heim :o)
En núna verð ég að hætta, er enn að vinna upp svefn fyrir seinustu tvær vikur :o) Svo góða nótt og ég skrifa fljótlega aftur.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home