Ég er komin heim!
Jæja þá er maður komin heim í frí! Ekkert smá skrítið að koma heim í sumarfrí, það er einhvað sem ég hef aldrei gert áður. En einvern tíman er allt fyrst :o)
Það er annars allt gott að frétta, er bara að reyna að hitta alla fjölskylduna, vini og fyrrum samstarfsfólk. Svo reynir maður að slappa af á milli, fer til ömmu fyrir norðan í næstu viku að hlaða batteríin.
Ég fór á djammið á sunnudaginn, sama dag og ég kom. Maður þurfti nú að kíkja í bæinn um verslunarmannahelgina, hitti ótrúlega mikið af fólki sem maður hefur ekki séð í langan tíma! Þá er ég líka að tala um áður en ég fór. Erna minnti mig á það hvað það er gaman að fara á íslenskt djamm, við fórum útum allt og ég gat bara ekki fengið nóg af íslenska bjórnum :) Svo maður verður bara edrú um þessa helgi á geypride, þetta verður í fyrsta sinn sem ég get skemmt mér á geypride því maður er yfrirleitt að vinna!
Ég verð því miður að fara, er að fara að ná í Laufeyju í vinnuna. Maður verður nú að vera svolítið góður við litlu systur svona þegar maður hefur tíma svo hún þurfi ekki að skroltast með strætó. Ég læt heyra í mér seinna :o)

1 Comments:
At August 04, 2005,
Anonymous said…
Velkominn heim elskan mín :*
Ótrúlega gaman að sjá þig aftur :)
Post a Comment
<< Home