Birna

Wednesday, September 14, 2005

5 dagar!

Það eru 5 dagar þanngað til ég flyt!! Ég er bæði spennt og sorgmædd því ég er að segja bless við mikið af fólki sem hefur verið stór hluti af lífinu mínu hérna síðasta árið. Þetta verður erfitt en þess virði að breyta til, það er kominn tími fyrir breytingar. Ég hef nú aldrei verið sú manneskja að staldra við einhvað of lengi og sé enga ástæðu til að breita því í bráð. Ég ætla að reyna að ferðast eins mikið og ég get meðan ég verð í Californíu. Langar til Mexico, Los Angeles, San Diego, Las Vegas, Grand Canyon og fleiri fræga staði :o)
Ef einhver hefur áhuga á að koma í heimsókn og upplyfa einhvað af þessum ævintýrum með mér þá endilega sendið mér línu!

Annars er allt gott að frétta, er bara á fullu að pakka. Byrjaði loksins fyrir alvöru í gærkvöldi, er búin að vera með hangadi hendi yfir þessu í u.þ.b. viku! Er búin að skipurleggja næstum alla daganna þanngað til ég fer, þetta verður frekar strembinn helgi. Er reyndar með fyrri part laugardag lausan en veit það fer í að klára að pakka. Nenni nebbla ekki að vera að klára að pakka á máudag svo ég ætla að reyna að vera búin á sunnudaginn.

En annað mál sem mig langar að nefna við ykkur sem lesið bloggið mitt. AFHVERJU COMMENTIÐI ALDREI, mér finnst stundum eins og enginn lesi það sem ég skrifa því það leggur enginn neitt til málanna!
Það tekur ekki það langan tíma að skrifa eina til tvær línur bara svo ég viti að það er einhver sem les bloggið mitt :o)

En ég verð að fara núna, skrifa aftur þegar ég hef tölvu. Ég er nebbla að fara að skila tölvunni á morgun svo ég verð tölvu laus þanngað til ég kem til Californíu. Nema að ég fái að kíkja smá í tölvunna hjá fólkinu sem ég bý hjá núna ;-)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home