Birna

Sunday, September 18, 2005

Califronía, here I come :o)

Jæja þá er loksins komið að því, ég er að flytja á þriðjudaginn. Ég á minna en 2 daga eftir, nánar tiltekið þá á ég 45 tíma eftir!!!

Í gærkvöldi var síðasti hópfundur með Au Pairunum hérna, ráðgafinn okkar var með rosa veislu. Hún er með þessa veislu á hverju ári og það voru u.þ.b. 100 manns þarna. Þetta var líka kveðjupartíið mitt, ég fékk rosalega flotta köku með bjöllu á, set in myndir bráðlega svo þá getið þið séð hana! Það er skrítið að segja bæ við alla og fara á nýjan stað og eignast nýja vini, en ég vona að þær séu jafn skemmtilega og þær sem eru hérna!!

Annars er ekkert annað að frétta, er að klára að pakka í dag. Skila tölvunni, já ég frestaði því í nokkra daga til að ég hefði tölvu til að sjá pótinn minn og fleira. Fer út að borða með fólkinu sem ég bý hjá í kvöld. Annað kvöld ætla ég að reyna að fara snemma að sofa en veit ekki hvernig það fer!

En ég verð að fara, Sam er að bíða eftir mér svo við getum fengið okkur morgunmat! Skrifa aftur um leið og ég er komin til Californíu :o)

1 Comments:

  • At September 20, 2005, Anonymous Anonymous said…

    Hæ sætan mín ;)
    Gangi þér rosa vel í Californíu og hlakka til að heyra frá þér :)
    kiss og knús

     

Post a Comment

<< Home