Birna

Thursday, September 22, 2005

Ég er staðsett í Californíu!!

Jæja þá er maður kominn heill á hölnu! Flugferðirnar gengu vel þótt það væri óþarfar hristingur í fyrri vélinni, var sem betur fer svo þreytt að þetta virkaði eins og einhver væri að vagga mér til svefns :o) Ég millilenti í Chicago sem var frekkar cool. Sá nú ekki mikið meira en flugstöðina en hún er ekkert smá flott, tók mynd og set hana inn um leið og ég er búin að framkalla!

En allavegna tókst vel að finna Helen á flugvellinum! Við fundum eiginlega hvor aðra því ég var búin að segja henni í hvernig fötum ég mundi vera í og hún var búin að lýsa sjálfri sér og svo var ég búin að sjá eina mynd af henni. Þegar við vorum rétt að byrja að keyra frá flugstöðinni hringdi síminn hennar og hún þurfti að tala í hann í þó nokkurn tíma. Hún er læknir og er með nokkra læknanema undir sér sem þurftu að fá ráð hjá henni. Allavegna gekk bílferðinn vel, keyrðum fram hjá NASA, Helen fer stundum í danskennslu þar!!

Ég er búin að sjá bara lítinn hluta af háskólanum þar sem þetta er með stærstu háskólasvæðunum í Bandaríkjunum! Fór í smá labbitúr í dag til að finna mér einhvað gott í gogginn, fann einhverns konar veitingastað þar sem var löng röð svo ég hugsaði með mér að þetta hliti að vera góður staður og fékk mér boritos. Þetta var með verstu boritos sem ég hef smakkað, ótrúlega þurt og alltof mikið af hrísgrjónum og baunum!! Vona að næsti staður sem ég prófa verði einhvað betri :)

En ég gleymi alveg að segja ykkur frá nýju fjölskyldunni minni, Simon sem er að verða 13 eftir 2 vikur er að breytast í algöran ungling að mati mömmu hans!! Hann hefur samt góðan tónlistarsmekk og er að fara með mér á Sigur Rósar tónleikana á laugardaginn eftir viku :o) Jeremy er 8 ára og er algör rúsína, hann er mjög aktívur svo ég þarf að vera vel sofinn áður en hann kemur heim úr skólanum svo ég hafi einhverja orku til að leika við hann. Helen er mjög fín, hún er líka mjög upptekinn, fer út um hálf 8 og er komin heim um 8 eða 9 á kvöldinn. Þetta er víst bara tímabundið núna því hún er á bakvakt þar til í næstu viku svo vonandi getur hún sest niður með mér þá svo við getum talað saman!!
Au Pairin sem var hérna á undan mér er enn hérna en býr hjá vinkonu sinni þar til hún fer í næstu viku. Hún er að hjálpa til þar til ég kemst inn í þetta allt saman, hún er tildæmis enn með bílinn sem ég verð á og gemsan svo þið verðið bara að bíða með að fá númerið!!

En ég verð að fara, er görsamlega að leka úr þreyttu þótt ég hafi sofið í 10 eða 12 tíma í gær og síðustu nótt. Þurfti að sofa flugþreytuna og síðustu nætur af mér, hlaða batteríin.
Góða nótt og sofið rótt, ég skrifa aftur fljótlega :-)

1 Comments:

  • At September 23, 2005, Anonymous Anonymous said…

    KLUKK - sjá mína heimasíðu.

    p.s. nenniru svo að taka mig út af tenglalistanum þínum?

     

Post a Comment

<< Home