Mt. Major
Já góðir hálsar, ég er búin að fara í mína fyrstu alvöru fallgöngu, hef auðvitað farið upp fjöll áður en ekki eins og þetta! Mt. Major er 1954 fet og að hluta þurftum við að klífa. Þetta var ekkert smá gaman og var ég görsamlega sprungin þegar upp var komið. Enda tók þessi fjallganga/klifur einn klukkutíma og 20 mínútur!! Útsýnið var frábært, fjallið er alveg upp við stórt vatn með mörgum litlum eyjum sem gerði útsýnið enn fallegra en áður. Það var u.þ.b. 25 stiga hiti með smá golu og það voru nokkur bómullar ský. Ég veit að þetta er ótrúlega gay en þetta er með ótrúlegustu hlutum sem ég hef gert! Hluti af mér vildi snúa við því ég var orðin frekar lofthrædd í lokin en ég hélt áfram því það var stelpa með okkur sem er bara 5 ára og hún tók þetta létt! Ég fór með Sam vinkonu minni og host fjölskyldu hennar, host mömmu hennar og stelpunum 3 sem hún hugsar um, þær rétt svitnuðu meðan við Sam lákum og vorum rauðari en trúðsnef í framan :o)
En annað mál, það er ekkert annað sérstakt sem er búið að vera í gangi. Er bara búin að vera á fullu að byrja að pakka og ganga frá mínum málum hérna! Ég fer eftir 12 daga og á bara eftir að vinna í 7, sem sagt bara 7 sinnum í viðbót að moka skít og svo er ég farinn :o) Það er einhvað sem ég á ekki eftir að sakna!
En það er skrítið að vera að fara og vita til þess að ég á kannski ekki eftir að sjá einhvað af þessu fólki aftur, ég meina aldrei aftur! Hvað eru líkurnar að ég eigi ftir að hitta á þau einhvers staðar í heiminum. Ég fer auðvitað í heimsóknir seinna og á eftir að hitta þá sem mest skiftu máli en allir hinir verða bara einhvað fólk sem var á lífsleiðinni minni og ég þeirra!
En ég verð því miður að fara, þarf að sofa því ég þarf að vera útkvíld fyrir helgina. Já meðan ég man, ég er að fara til New York á laugardaginn með Sam. Við erum bara að fara í dagsferð, förum með rútu frá Boston klukkan 8 um morguninn og verðum komnar til New York í hádeginu og förum svo með rútu frá New York klukkan 10 um kvöldið og verðum í Boston um klukkan 2 um nóttina!! Ég veit við erum brálaðar en við þurfum ekki meiri tíma í New York því við höfum báðar farið þanngað áður, mig langar bara að fara í síðasta sinn í langan tíma!!
Allvegna, skrifa eftir helgina með sögur frá New York, good night and take care!

0 Comments:
Post a Comment
<< Home