New York
Þá er ein vika til stefnu, ég fer á þriðjudaginn eftir vikur! Og ég og Sam vinkona mín fórum til New York í gær (laugardag), við vorum bara í einn dag. Vöknuðum klukkan 5 um morguninn og keyrðum til Boston til að taka Fung Wha Bus (Kínverskt rútufyrirtæki) til New York klukkan 8 um morguninn. Þar sem þetta var í fyrsta sinn sem ég keyrði í Boston, tek alltaf lest til Boston, viltist ég ÖRLÍTIÐ :-) Við komum að hliðinu okkar á rútustöðinni akkúrat klukkan 8, rútan var að fara og okkur var sagt að þau létu sætinn okkar til einhvers anars því við vorum ekki á tíma, en við gætum tekið hálf 9 rútuna sem er fínt því venjulega er rúta á hverjum heila tíma en þau bættu við einni aukaferð svo við þurftum ekki að bíða eins lengi.
Það tók rétt meira en 4 tíma að keyra til New York og stoppaði rútan í Chinatown (Kínahverfið í NY), þar sem þetta er Kínverskt fyritæki. Mér leið eins og sardínu í pínu lítilli dós, það var svo mikið af fólki þarna á einum stað! Því fær sem við fórum frá Chinatown því færra fólk, samt ekki mikið færri en mér leið ekki lengur eins og sardínu!
Við tókum subway til Central Park og löbbuðum í gegnum garðinn til að fara á risaeðlusafnið. Mér finnst það enn ótrúlegt að þessar skepnur voru einu sinni á lífi, þær eru svo rosalega stórar sumar að ég fæ í hálsin af því að horfa upp. En þetta var í fyrsta sinn sem Sam fór í Central Park svo við tókum lengri leiðina í gegnum garðinn til að hún gæti séð sem mest. Það var ótrúlega mikið í gangi enda var þetta alveg frábær dagur, sólin skein og það var u.þ.b. 25-30 stiga hiti, það var svalt í skugga. Það voru 2 Jazz hljómsveitir, trúður og einhvers konar minningar athöfn fyrir John Lennon og svo var hægt að leiga bát til að fara á eitt vatnið, fara í hestakerru um garðinn eða fara í hjólakerru um garðinn með leiðsögn.
Þegar við vorum að labba á áttina til safnins fékk ég rosalega góða hugmynd, reyndar þekki ég stelpu sem gerði þetta og mér finnst þetta vera frábær hugmynd svo ég ákvað að gera þetta líka. hún tók mynd af öllum mismunandi númeraplötum sem hún sá, það er frá öllum ríkjunum því þær eru ekki eins í neinu ríki. Svo þarna vorum við á að labba og ég tek upp myndavélina og byrja að taka myndir því úrvalið var mikið. Ég ætla að reyna að safna öllum 50 ríkjunnum, veit samt ekki með Hawaii og Alaska en ætti að geta öll önnur :-)
Eftir að við vorum búnar að skoða safnið, samt ekki allt því þetta er risa stórt safn og getur tekið 4 tíma að skoða allt, löbbuðum við í áttina til Times Square og Brodway. Við áttum mjög svo notalegan dag, við vorum ekki að gera neitt sérstakt, bara að labba um og skoða það sem fyrir augum var. Við fundum skemmtilegan Kínverskan veitingastað sem var með hlaðborð, ódýrt en mjög gott! Við vorum ornar frekar þreytar eftir matinn en við löbbuðum aðeins meira til að ég gæti tekið mynd af Bubba Gump veitingastaðnum! Ákváðum svo að far í Kínahverfið svo við gætum verslað smá og reynt að taka fyrri rútuna heim. Við gerðum ekkert smá góð kaup, fengum flotta NY boli á ekki neitt, 2 sandala (þessa með netinu og blómunum á) á $6 dollara, svo keypti ég mér belti á $5 dollara og handtösku á $20 dollara (ótrúlega cool)!! Ég versla yfirleitt ekki fyrir sjálfan mig en það svo mikið af sölubásum í NY sem eru með cool dót á ekki neitt!!
Reyndar fór ég í Victoria´s Secret í dag (sunnudag) og verlaunaði mig fyrir að hafa verið hérna í eitt ár. Fékk ávísun frá Au Pair In America fyrir að ljúka árinu um daginn og langaði að verlauna mig með hluta af því, fór til NY og í Victoria´s Secret :o) Maður verður stundum að vera góður við sjálfan sig :-)
En ég verð að fara núna, er enn þreytt eftir NY og þarf að vakna klukkan hálf 6 til að fara að vinna klukkan 6! Þetta er síðasta vikan mín hérna svo það verður mikið að gera, reyni nú samt að henda inn nokkrum línum áður en ég skila tölvunni til mömmu hans Jims.
Góða nótt og sofiði nú rótt í alla nótt :o)
P.S. Ég er að hætta með gemsan minn í þessari viku svo það er bara e-mail þar til ég fer til Californíu og fæ nýtt númer :)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home