Birna

Saturday, October 29, 2005

Restin

Þá held ég áfram og ætla að reyna að klára að segja ykkur frá öllum ævintýrunum sem ég hef lént í til þess!!
Mánudaginn eftir að ég var í San Francisco (framvegis kallað San Fran eða SF) þá hringir María í mig (hún er Au Pair frá Slóvakíu) og hún spyr mig hvort ég vilji ekki fara í hjólatúr með henni um háskóla svæðið. Ég ákvað að slá til þar sem ég hef ekki haft tíma til að klára að skoða svæðið því það er rosalega stórt. Við hittumst rétt hjá kirkjunni, hún er í miðjunnu og ótrúlega falleg. Það var vörubíll þarna og hálf uppsett svið og þar sem ég er svo forvitinn þurfti ég auðvitað að spurja hvað væri á gangi :o) Ég spyr einhvern strák sem segir mér að milli hálf 11 og hálf 1 þá sé árlegit útitónleikar sem kallast Moonlight Madnes. Við María ákváðum að koma aftur þanngað eftir að værum búnar að fara á kaffihús til að fá okkur kökusneið þar sem við vorum SVO duglegar að hjóla og áttum það skilið ;)

Eftir kökuátið og smá sjónvarpsgláp (sáum Friends og Seinfeld) fórum við fyrir utan kirkjunna og sjá hvort þessi hátíð væri byrjuð. Við læstum hjólunum og eltum skaran, það var ekkert smá mikið af fólki!! Við náðum að standa nálægt sviðinu og rétt eftir að við komum byrjaði fyrsta hljómsveitinn að spila, það voru 4 hljómsveitir að spila, allt fólk úr skólanum. Fyrsta hljómsveitinn var geðveikt góð, þeir coveruð 80´s rokk og það var gaman að horfa á þá því söngvarinn var með ágætis show!! Kvöldið leið og fleiri bönd spiluðu og alltaf fjölgaði í áhorfendahópnum og ótrúlega mikið af fólki var klætt í grímubúning því hrekkjavakan er á mánudaginn 31 október. En það sem var hvað mest furðulegt er að allt í einu í miðju lagi hjá einni hljómsveitinni kemur hópur af fólki ALLS NAKIÐ með PÍNU litla body málingu!! Ég er var svo hissa að ég görsamlega gapti!! En þetta var samt geðveikt fyndið líka því löggan var að hlaupa á eftir sumum :þ Það eina sem við María vorum óánægðar með er að við gleymdum myndavélunum okkar!! Okkur langaði að gráta því hverjar eru líkurnar á að við römbuð inn á einhvað svona aftur!! Þótt ég búi hérna er ég ekkert alltaf að forvitnast um hvað er að gerast, er alltof upptekin með annað :o)

Annað í fréttum er að ég fór til San Fran að djamma síðasta laugardag og skemmti mér bara mjög vel. Við fórum á einhvern club og borguðum $20 dollara til að komast inn!! Staðurinn er kallaður 1015 og er á 3 hæðum með 4 dansgólfum. Á efstu hæðinni var house tónlist, miðhæðin var með hipp hop rapp og þar fyrir innan var tekknó og á neðstu hæðinni var líka tekknó, bara orlítið harðara. Ég er nú ekkert fyrir þessa tónlist en dansaði nú samt við einhvern gaur sem ég hitti þarna allt kvöldið ;) Ég settist niður þegar við vorum búnar að vera þarna í u.þ.b. klukkutíma til að hvíla mig og þá kemur einhver gaur upp að mér og spyr hvort hann megi setjast, jújú ekkert mál, nóg af lausum sætum. Við byrjum svo að spjalla og ég komst að því að hann heitir Jeremy, hann er hermaður og býr í Þýskalandi!! Já ég veit, alltaf jafn heppin eða þannig.. Hann var bara hérna í nokkra daga til að heimsækja foreldra sína. Við spjölluðum og dönsuðum og það var gaman en samt skrítið því éger enn að venjast því að vera á lausu. Finnst það samt frábært núna því ég er svo upptekin með öðrum Au Pairum og ég er loksins að njóta þessa að vera Au Pair og bara yfir höfuð að njóta lífsins :o)

En ég verð að fara núna, er orðin svöng og strákarnir koma heim eftir 2 tíma. Er að vinna alla helgina því Helen þurfti að fara á ráðstefnu yfir helgina. En það er í lagi því næstu helgi fer ég kannski til Napa, jamm þar sem flest allir vínbúgarðarnir eru, ætlum að fara í smá vínsmökkun ;) Já og svo helgina eftir það fer ég til Las Vegas með Helen og strákunum, verðum þar í eina nótt því Helen þarf að fara á einhvern fund á laugardeginum. Mig hlakkar ekkert smá til, fæ loksins að sjá Vegas baby!! En núna er ég allavegna búin að segja ykkur allt nema auðvitað frá því að ég fór á Karokíbar síðasta miðvikudag og ég söng eitt lag sjálf og eitt með Maríu, var bara ekki svo slæm þótt ég segi sjálf frá :o)
Farið nú vel með ykkur þarna í kuldanum, er búin að vera að lesa um nokkrar bílveltur svo farið varlega!

Wednesday, October 26, 2005

San Francisco og Cable Car Tour

Þá er ég bara 8 dögum á eftir að fylla inn það nýjasta :o) En síðasta sunnudag, 16 október fór ég til San Francisco til að fara á minn fyrsta cluster meeting hérna. Við áttum miða í Cable Car Tour sem Au Pair in America borgaði fyrir, þau gera alltaf einhvað einu sinni á ári fyrir okkur. Í fyrra fór ég í hádegisverðasiglingu í Boston. Ég fékk far með Melkorku, Ewu og Kingu og við lögðum svolítið langt frá höfninni þar sem við áttum að hittast svo við þurftum að power ganga þanngað á korteri og við rétt komum þanngað í tíma! Þessi ferð var farinn í gömlum cable cars sem voru ekkert smá krúttlegir ;) Það var farið með okkur á alla helstu staðina í San Fran, ég sá Golden Gate brúnna og hún er ekkert smá flott. Sá líka Alkatraz, Fine muesum of Art og svo hæðsta staðinn í San Fran Twin peaks, útsýnið þar er ekkert smá flott, varð algörlega heilluð af því :o)

Eftir ferðina fór ég með nokkrum úr mínum cluster að labba um því ég var ekkert á þeim buxunum að fara heim. Ég var í fríi og þetta var fyrsta almennilega tækifærið mitt til að skoða borgina!! Fór reyndar á fimmtudeginum á undan með strákunum sem ég passa en við gerðum bara það sem þeir vildu gera. Fórum í garð með leiktækjum til að leika og í Playstation búðina til að spila á leikjatölvur í smá tíma og svo enduðum við á því að borða hádegismat á 50´s diner.

Já svo allavegna þá löbbum við um og enduðum á því að vera bara í búðum að skoða og sumar að kaupa einhvað. Keypti reyndar rosalega smart seðlaveski ;) Ég var búin að hringja í Val og láta hann vita að ég myndi vera í San Fran um daginn svo við ákváðum að reyna að hittast. Við ákváðum að ég myndi fara heim til hans og þaðan myndum við labba einhvert. Valur vildi sushi en þar sem ég er ekkert of hrifinn af því ákváðum við að fara á bar sem hann fer oft á. Það var ekkert smá fyndið að þegar við gegnum inn þá sögðu allar stelpurnar sem vinna þarna hæ við Val!! Þegar við vorum búin að borða þá gaf Valur mér leiðbeiningar með strætó svo ég gæti tekið lestina heim. Ég rétt náði lestinni, það er ég hljóp úr strætónum inn á lestastöðinna til að kaupa miða og svo inn í lestina, hún lagði af stað nokkrum mínótum seinna :o) Þegar lestinn kom til Palo Alto þá var fríi strætóinn sem fer um háskóla svæðið hættur að ganga svo ég ákvað að ganga heim. Labbaði reyndar hluta af leiðinni með einhverjum strák og stelpu sem eru í Stanford háskólanum. Það tók mig bara hálf tíma að labba heim, það var rosalega hressandi og svo var gott veður ;)

En ég verð að fara núna, uppáhaldsþátturinn minn var að byrja og mig langar að hirfa þar sem ég misti af honum síðasta þriðjudag. Bæðuvei þátturinn heitir Commender in Chef, hann er um fyrsta kvennforsetan í bandaríkjunum!! Skrifa aftur fljótlega svo þið getið lesið um hluti sem eru ekki viku gamlar fréttir :o)

Friday, October 21, 2005

Santa Barbara, framhald

Jæja þá hef ég loksins tíma til að sentjast niður og klára að skrifa um ferðina :o)

En allavegna þá skildi ég við ykkur með því að við vorum á djamminu! Þegar við komum til baka á Hostelið þá vorum við mjög þreyttar og nokkrar mjög drukknar og vildum við bara skríða upp í kjogurnar og fara að sofa. En hvað haldiði að hafi beðið eftir okkur þar!! Litlar PÖDDUR út um ALLT, rúmið mitt og nokkur önnur voru verst!!! Það voru 2 rúm sem voru pöddu-frí. Ég og Melkorka enduðum með því að sofa í herbergi númer 1 (vorum í númer 4), þekktum strák þar sem fann 2 laus rúm fyrir okkur, 2 sváfu í einum bílnum, 2 sváfu í herbergi með einhverjum frönskum pempíum (þeir voru hræddir við littlar pöddur, létu eins og stelpur). Svo drápust 4 í pöddu rúmunum því 2 voru drukknar og 2 voru bara alltof þreyttar til að nenna að gera einhvað.

Eftir alltof lítin svefn í lélegu rúmi var vaknað og við ákváðum að taka myndir af pöddunum (vorum búnar að taka einhverjar kvöldið áður) með dagblað svo við hefðum dagsettninguna á myndunum. Við tókum myndir af pöddunum í rúminu og af Melkorku safna þeim saman í poka svo tókum við mynd af okkur öllum saman í herbergiunu með pöddunum og dagblaðinu. Þegar við fórum til að skila lyklunum og kvarta við framkvæmdastjóran þá var hann ótrúlega dónalegur við okkur og sagði að hann gæti ekki endurgreitt okkur því hann hefði ekki kóde til þess í tölvunni. Svo byrjaði hann að kenna okkur um læti sem voru á ganginum um nóttina en það voru ekki við heldur annað herbergi og svo laug hann að okkur um að eigangdinn væri í Svíþjóð!! Hann var ekkert í Svíþjóð, hann var í Santa Barbara, við fengum að vita það þegar við töluðum við Olla (frá Englandi), hann vann á Hostelinu og fór að djamma með okkur svo við þekktum hann. Þegar við vorum að fara þá hittum við annan breta sem gisti líka á Hostelinu og var hann allur bitinn og leit ferlega illa út!! Þar sem við erum allar rosalega mömmulegar ákváðum við að fara með hann upp á spítala til að tekka á þessu, við tókum líka fullt af myndum af bitunum til að sýna heilbrigðiseftirlitinu því við ákváðum að hafa samband við það því framkvæmdarstjórinn vildi ekki endurgreiða okkur. En allavegna þá fóru nokkrar af okkur á ströndina meðan restin fór að finna spítala fyrir David, aka Bugboy eins og ég kallaði hann ;) Við fundum spítala og okkur var sagt að það myndi kosta hann þúsund dollara að sjá lækni svo okkur var bent á heilsugæslustöð og hann þurfti bara að boga $120 dollara. Hann sá lækni og þegar hann kom út leit hann mun betur út og þá meina ég MUN betur, bólgurnar og bitinn voru að jafna sig og hann var ekki eins bólginn. Eftir þetta ævintýri fór ég, Melkorka og Ewa að labba á ströndinni í leit að sjávarréttastað. Okkur langaði að halda upp á afmælið hennar Ewu því meira en helmingurinn af deginum fór í pöddu vesen og í spítala leit. En við fundum mjög skemmtilegan stað með útsýni yfir ströndina og smábátahöfnina. Þegar við vorum búnar að bíða í næstum 2 tíma eftir að allir kæmu gátum við loksins pantað mat og við vorum búnar að kaupa köku og var þetta rosalega skemmtilegt og afslappað. Eftir matinn þurftum við að fara því klukkan var að verða margt og það var u.þ.b. 4 tíma akstur. Ewa keyrði og var það sami hraði á henni og á Melkorku en ég var of þreytt til að gera rellu útaf því og fór bara að sofa :o) Ég kom heim um 2 leitið eins og ég sagði í fyrri færslu.

Svo þetta var mjög skemmtileg ferð fyrir utan pöddurnar. Já og talandi um pöddurnar þá tók ég þær með mér heim því ég ætlaði að fara með þær á rannsóknarstofu hérna á háskólasvæðinu. ÞAÐ var nú meira ævintýrið, það tók mig u.þ.b. klukkutíma að finna líffæra rannsóknarhúsið og þegar ég kom þanngað var það lokað í hádeginu, milli 12 og 1 og ég var þar um 10 yfir 12 svo ég ákvað að bíða því ég var sko ekki að fara útum allt aftur til að finna rétta húsið aftur!! Þegar það loksins opnaði aftur spurði ég á skrifstofunni hvar ég gæti fengið að vita hvaða pöddur þetta væru en mér var sagt að þau væru ekki með þesskonar líffræði þarna og bentu mér á annan stað í San Francisco. Er búin að frétta núna hvernig pöddur þetta eru, þetta eru einhverskonar badbugs eða einhvað í þá áttina, veit lítið annað um þær.

En ég verð að fara núna, þarf að fara á pósthúsið og fleira stúss áður en ég þarf að fara að ná í strákanna. Ég ætla að reyna að skrifa meira á morgun um ferðina sem ég fór í til San Francisco síðasta sunnudag og hvað ég og María lentum í síðasta mánudagskvöld!! Það var nú meira ævintýrið en ég verð að skrifa um það seinna. Þanngað til seinna ;)

Saturday, October 15, 2005

Santa Barbara

Þá er maður búin að fara til Santa Barbara, þér sem ekki vita þá er það strandar bær aðeins fyrir norðan LA. Við vorum 10 Au Pairar sem fórum á 2 bílum og við vorum búnar að bóka herbergi á hosteli sem hafði 5 kogjur svo við gátum allar verið saman í herbergi. Við lögðum af stað eldsnemma á laugardagsmorgun og ég var komin heim klukkan 2 á mánudagsmorgun!! Þetta byrjaði allt saman rosalega vel, ég hitti allar stelpurnar og auðvitað tók það mig nokkur skifti að muna öll nöfnin og hvaðan þær eru. Var samt alltaf að gleyma þeim yfir helgina því ég get ekki munað nöfn, mundi þau samt öll á sunnudeginum :o)

En allavegna áfram með söguna, við vorum á tveimur bílum og var ég í bíl með Melkorku, Ewu, Unya og Lenka (hún var hérna í heimsókn hjá fólki sem Ewa þekkir, hún býr í London). Við vorum á Melkorku bíl og var hún auðvitað að keyra og það var ekkert verið að eiða neinum tíma heldur keyrði hún á 100 til 120 í mílum!! Það er u.þ.b. 180 til 200 km!! Ég var svolítið smeik fyrst en jafnaði mig mjög fljót á þessu því það keyra allir svona hratt hérna, þarf samt ekki að þýða að ég geri það ;) En ferðinn tók rétt meira en 4 tíma og við byrjuðum að fara á Avocado Festival sem var rétt fyrir utan Santa Barbara. Ég, Ewa og Martina keyptum okkur Tequila til að blanda í Pinacolada sem við keyptum á hátíðinni, þeir voru nebbla ekki með áfengi svo við fórum í næstu búð og keyptum pela og földum í töskunni minni!! Fórum svo á ströndina og ég snerti Kyrrahafið í fyrsta sinn og sá það líka almennilega því það var dimmt þegar ég sá það fyrst! Þegar við vorum búnar að hanga á ströndinni í þó nokkurn tíma og Melkorka búin að leggja sig var ferðinni heitið á Hostelið sem við vorum búnar að bóka herbergi. Við komum þanngað og hinn bílinn viltist svo meðan við biðum fórum við Ewa inn á hostelið til að bóka okkur inn. Það fyrsta sem við sjáum er mjög myndarlegan strák/mann og við spurjum hann hvort hann vinni þarna, hann segir á bjagaðari ensku að hann vinni ekki þarna en hann geti hjálpað okkur að finna einhvern. Eftir stutta leit kemur þessi rosalega myndarlegur maður inn og spur hvað hann geti gert fyrir okkur, hann er með rosalega þykkan en flottan enskanhreim. Meðan Ewa var að tjekka okkur inn þá fór ég að tala við þennan strák sem hjálpaði okkur fyrst, ég kemst að því að hann er frá Ítalíu, nánar tiltekið Silkiley og að hann sé komin hingað til að vinna í nokkra mánuði. Ég næ lítið að tala meira við hann því hinar stelpurnar komu og ég þurfti að sýna þeim hvar við áttum að leggja.

Okkur var úthlutað herbergi númer 4 og fór helmingurinn að leggja sig, þar á meðal ég á meðan hinn helmingurinn fór með strák að nafni Andrew úr herbergi 3 í leit af áfengi og snakki. Ég náði nú lítið að leggja mig og fór í staðinn að gera mig klára fyrir kvöldið! Þetta var algör hænsnakofi, við vorum allar að mála okkur og skifa um föt og það voru alltaf einhverjir strákar í herberginu okkar!! Það er greinilegt að 10 stelpur séu svolítið vinsælar ;) En við byrjum allar að drekka og ég fer að finna á mér á 3 bjór því ég hef ekki verið að drekka mikið upp á síðkastið, svo var ég líka þreytt, vaknaði klukkan 5 um morguninn!! En við erum u.þ.b. að fara út þegar Ollie (sæti bretinn sem var að vinna þarna)og Pedro (Ítalinn sem ég var að tala við fyrr um daginn) komu inn í herbergið okkar til að reka á eftir okkur. Þær ætluðu nebbla að sýna okkur djammið þarna. Við erum á leiðinni út þegar Lenka (ein af Au Pairunum) ákveður að hún sé ekki lengur í stuði til að fara út svo hún verður eftir með bók sem hún var að lesa! Ég var að drekka fjórða bjórinn minn á leiðinni út og var að reyna að þamba hann en ég hef aldrei verið rosalegur bjór þambari svo auðvitað bið ég um hjálpa og vitiði hver bauðs til þess! Engin annar en Pedro, hann sagði að hann væri til þjónustu reiðubúin :o) Við fórum á nokkra staði og á einum þá fer ég upp að Pedro og spyr hann hvort hann vilji ekki dansa við okkur, hvað haldiði að gaurinn geri!! Hann tekur utan um mig og við byrjum að dansa, þetta var ekkert smá rómó, það var nebbla einhver sjarmur yfir honum og ég görsamlega bráðnaði í höndunum á honum ;þ
Það var rosalega gaman að djamma loksins með fullt af stelpum og nokkrum strákum frá Hostelinu okkar! Pedro var mjög áhugasamur um mig en ég er enn að komast yfir Jim svo ég fékk ekki númerið hjá honum né gaf ég honum mitt! Þetta var samt rosaleg upplyfting að hafa einhvern í kringum sig sem hefur áhuga á manni, einhvern til að segja að ég væri falleg og að ég gerði hann brálaðan ;)

En ég verð að fara núna að sofa, er að fara til San Francisco á morgun! Skrifa um það seinna ásamt framhaldi frá Santa Barbara því allur Sunnudagurinn er eftir ásamt pöddunum!! En þanngað til seinna, farið vel með ykkur í þessum kulda heima, ég er hérna enn í sól og sælu :þ

Friday, October 07, 2005

Sigur Rós

Já, þá er ég búin að sjá Sigur Rós og þeir voru FRÁBÆRIR!! Þetta voru magnaðir tónleikar, var ekkert smá stolt af því að vera íslendingur og það sem betra er ég fékk afslátt af bol því ég er íslensk (það voru íslenskar stelpur að selja bolina) :o) Það var líka einhver íslensk hljómsveit að hita upp fyrir Sigur Rós, ég man ekki nafnið en þær voru frekar góðar.
En hvað er ég að pæla, ég hef ekki sagt ykkur með hverjum ég fór og hvernig ég komst þanngað!! Þetta var nú meira ævintýrið og þá er nú lítið sagt!!

Simon (eldri strákurinn sem ég hugsa um) ætlaði með mér á tónleikanna en sagði við mig síðasta miðvikudag að honum langaði ekki og að Melkorka (Au Pair sem ég þekki hérna sem er íslensk) hefði ábyggilega meira gaman af því að fara. Svo ég hringi í hana og kemst að því að hún er að vinna alla helgina og kemst ekki. Ég hringi í stelpu frá Póllandi sem er vinkona Melkorku og spyr hana em hún er upptekinn. Ég hrindi í stelpu frá Ítalíu sem ég þekki ekkert og spurði hana. Já og svo stelpa frá Téklaslóvakíu sem ég fór með á kaffihús í síðustu viku!!

Ég var farin að halda að ég þyrfti að fara ein þar til að ég fékk þessa frábæru hugmynd! Þegar ég talaði við Melkorku í fyrsta sinn þá mintist hún á íslenskan strák sem er í skóla í San Francisco. Svo ég hringi í Melkorku og fæ númerið hjá honum, þetta er um miðjan dag föstudag, munið að tónleikarnir voru á laugardegi. Ég hringi og skil eftir skilaboð með nafni, númeri og að ég eigi miða á tónleikanna. Á föstudagskvöldið tók ég strákanna út og í keilu og allt í einu hringir símin,. jújú þetta var Valur! Hann var á leiðinni í partý og það sem meira er hann var að fara á sömu tónleika með vini sínum og þeir voru með aukamiða!! Svo við ákváðum að ég gæti fengið þeirra miða og við myndum selja mína fyrir utan leikhúsið!! Við ákváðum einnig að við myndum vera í bandi á laugardeginum og ég myndi keyra til San Francisco til að ná í þá og síðan myndum við öll fara saman á tónleikanna þaðan. Um miðjan dag laugardag ákvað ég að hringja í Val og fá heimilsfangið hjá honum svo ég gæti prentað út leiðbeiningar og farið að gera mig klára fyrir kvöldið. Ég fékk beint samband við talhólfið hans og skildi eftir skilaboð, þetta var um hálf 3 leitið. Tónleikarnir byrjuðu klukkan 8 og ég bý í u.þ.b. 40 mín frá San Francisco og mig langaði að leggja af stað snemma því ég hafði aldrei keyrt þangað fyrr og var með það í huga að leggja af stað milli 5 og hálf 6! Þegar ég var u.þ.b. að verða tilbúinn klukkan hálf 6 og orðin frekar stressuð því ég hafði ekkert heyrt í Vali!! Ég var búin að reyna að hringja í hann aftur án árangurs þegar hann loksins hringir og tilkynnir mér að hann hafi brotið skjáin á símanum sínum svo hann gat ekki séð símabókina sína og að hann hafi hringt í 5 önnur númer til að finna mig!!
En ég fæ heimilisfangið hans og prenta út leiðbeingar og legg af stað!!

Kem til San Francisco á góðum tíma nema að ég lendi í þessari massa umferðarteppu, missi af beygunni minni í miðborg San Francisco og er heil lengi að finna rétta leið aftur, þurfti að hringdi í Val til að fá leiðbeiningar því ég var ekki með neitt kort!! En loksins fann ég réttu götuna og þar af leiðandi Val og Ryan. Þeir hoppa inn í bílinn, við kynnum okkur og leggjum af stað, Ryan var frekar hissa þegar við sögðum honum að við Valur hefðum aldrei hisst áður. En svona eru íslendingar þegar við búum erlendis, við þefum upp aðra íslendinga, fáum númerið hjá þeim og höfum samband! Eða eins og Valur orðar það: ''við þurfum að standa saman í þessu brálæði''.

Við komum til Oakland og auðvitað villumst við, enda hefur ekkert af okkur komið þanngað áður! Við stopum frekar skuggalegan bíl og leggjum við hliðiná honum og spurjum til vegar, þetta voru 2 spænskumælandi menn. Við finnum loksins réttu götuna eftir að ég var búin að brjóta u.þ.b. 3 umferðalög (ekkert of hættuleg þó)!! Við leggjum bílnum og finnum leikhúsið. Við löbbum um og spurjum fólk hvort það vanti 2 miða en engin svarar nema einhver afrískur/bandaríksur maður og ég seldi honum miðana á $40 dollara (keypti þá á $91 dollara) því okkur langaði að fara inn til að missa ekki af meiru, við komum þanngað korter yfir 8!!

En við skemtum okkur mjög vel og það var ótrúlegt að sjá þá, þeir voru með geðveikt show. Þeir voru einhverskonar ljósashow og svo sýndu þeir stundum myndböndinn á tjaldi bakvið þá. Það er erfitt að útskýra þetta, maður verður bara að sjá það með eigin augum! Mig langar geðveikt að sjá þá aftur :o)

En annað, þá er ég að fara til Santa Barbara um helgina með nokkrum öðrum Au Pairum! Og annað stórt, ég náði skriflega bílprófinu síðasta mánudag með einni villu!! Er ekkert smá stolt af mér :o) Tek verklega eftir næstum 2 vikur en er með bráðabyrgða leyfi þanngað til, ekkert smá fyndið að vera aftur með einhverja papíra sem segja að ég meigi keyra, þetta er eins og að vera 17 ára aftur :o)

En ég lofa að skrifa strax eftir helgina með fleiri fréttir, hafið það sem allra best þanngað til ;)

Saturday, October 01, 2005

Klukkið

Jæja hafði loksins tíma í þetta klukk sem systir mín kom mér í! Þarf að skrifa einhverjar 5 staðreyndir um mig sem fólk alment veit ekki.

Númer eitt
Ég hætti að naga neglurnar þegar ég var að verða 20 ára.

Númer tvö
Ég er með fullkomnunaráráttu, en er að læra að að hemja mig, ég veit ég get ekki stjónað öllu og ég er loksins að læra að sætt mig við það!!

Númer þrjú
Ég lærði á hljómborð í 2 ár og man ekkert nema Góða Mamma!! Lærði líka á blokkflautu í nokkur ár á undan því!

Númer fjögur
Lærði ekki að lesa fyrr en ég var 8 ára!! Komst að ástæðunni þegar ég var 13 ára, ég var greind með lesblindu.

Númer fimm (Vá þetta er erfitt!)
En svona í lokin þá ætla ég að viðurkenna eitt, ég saug þumalinn og hafði kúrusæng (gömul barnasæng) þanngað til ég var 11 ára!! Ég veit ég var stórt barn!

En þá er það komið og ég skora á vinkonu mína hana Elísubetu!!
Ég verð að fara núna en ég skrifa meira seinna, er að fara á Sigur Rósa í kvöld og skrifa vonadi allt um það á morgun :o)