Birna

Friday, October 21, 2005

Santa Barbara, framhald

Jæja þá hef ég loksins tíma til að sentjast niður og klára að skrifa um ferðina :o)

En allavegna þá skildi ég við ykkur með því að við vorum á djamminu! Þegar við komum til baka á Hostelið þá vorum við mjög þreyttar og nokkrar mjög drukknar og vildum við bara skríða upp í kjogurnar og fara að sofa. En hvað haldiði að hafi beðið eftir okkur þar!! Litlar PÖDDUR út um ALLT, rúmið mitt og nokkur önnur voru verst!!! Það voru 2 rúm sem voru pöddu-frí. Ég og Melkorka enduðum með því að sofa í herbergi númer 1 (vorum í númer 4), þekktum strák þar sem fann 2 laus rúm fyrir okkur, 2 sváfu í einum bílnum, 2 sváfu í herbergi með einhverjum frönskum pempíum (þeir voru hræddir við littlar pöddur, létu eins og stelpur). Svo drápust 4 í pöddu rúmunum því 2 voru drukknar og 2 voru bara alltof þreyttar til að nenna að gera einhvað.

Eftir alltof lítin svefn í lélegu rúmi var vaknað og við ákváðum að taka myndir af pöddunum (vorum búnar að taka einhverjar kvöldið áður) með dagblað svo við hefðum dagsettninguna á myndunum. Við tókum myndir af pöddunum í rúminu og af Melkorku safna þeim saman í poka svo tókum við mynd af okkur öllum saman í herbergiunu með pöddunum og dagblaðinu. Þegar við fórum til að skila lyklunum og kvarta við framkvæmdastjóran þá var hann ótrúlega dónalegur við okkur og sagði að hann gæti ekki endurgreitt okkur því hann hefði ekki kóde til þess í tölvunni. Svo byrjaði hann að kenna okkur um læti sem voru á ganginum um nóttina en það voru ekki við heldur annað herbergi og svo laug hann að okkur um að eigangdinn væri í Svíþjóð!! Hann var ekkert í Svíþjóð, hann var í Santa Barbara, við fengum að vita það þegar við töluðum við Olla (frá Englandi), hann vann á Hostelinu og fór að djamma með okkur svo við þekktum hann. Þegar við vorum að fara þá hittum við annan breta sem gisti líka á Hostelinu og var hann allur bitinn og leit ferlega illa út!! Þar sem við erum allar rosalega mömmulegar ákváðum við að fara með hann upp á spítala til að tekka á þessu, við tókum líka fullt af myndum af bitunum til að sýna heilbrigðiseftirlitinu því við ákváðum að hafa samband við það því framkvæmdarstjórinn vildi ekki endurgreiða okkur. En allavegna þá fóru nokkrar af okkur á ströndina meðan restin fór að finna spítala fyrir David, aka Bugboy eins og ég kallaði hann ;) Við fundum spítala og okkur var sagt að það myndi kosta hann þúsund dollara að sjá lækni svo okkur var bent á heilsugæslustöð og hann þurfti bara að boga $120 dollara. Hann sá lækni og þegar hann kom út leit hann mun betur út og þá meina ég MUN betur, bólgurnar og bitinn voru að jafna sig og hann var ekki eins bólginn. Eftir þetta ævintýri fór ég, Melkorka og Ewa að labba á ströndinni í leit að sjávarréttastað. Okkur langaði að halda upp á afmælið hennar Ewu því meira en helmingurinn af deginum fór í pöddu vesen og í spítala leit. En við fundum mjög skemmtilegan stað með útsýni yfir ströndina og smábátahöfnina. Þegar við vorum búnar að bíða í næstum 2 tíma eftir að allir kæmu gátum við loksins pantað mat og við vorum búnar að kaupa köku og var þetta rosalega skemmtilegt og afslappað. Eftir matinn þurftum við að fara því klukkan var að verða margt og það var u.þ.b. 4 tíma akstur. Ewa keyrði og var það sami hraði á henni og á Melkorku en ég var of þreytt til að gera rellu útaf því og fór bara að sofa :o) Ég kom heim um 2 leitið eins og ég sagði í fyrri færslu.

Svo þetta var mjög skemmtileg ferð fyrir utan pöddurnar. Já og talandi um pöddurnar þá tók ég þær með mér heim því ég ætlaði að fara með þær á rannsóknarstofu hérna á háskólasvæðinu. ÞAÐ var nú meira ævintýrið, það tók mig u.þ.b. klukkutíma að finna líffæra rannsóknarhúsið og þegar ég kom þanngað var það lokað í hádeginu, milli 12 og 1 og ég var þar um 10 yfir 12 svo ég ákvað að bíða því ég var sko ekki að fara útum allt aftur til að finna rétta húsið aftur!! Þegar það loksins opnaði aftur spurði ég á skrifstofunni hvar ég gæti fengið að vita hvaða pöddur þetta væru en mér var sagt að þau væru ekki með þesskonar líffræði þarna og bentu mér á annan stað í San Francisco. Er búin að frétta núna hvernig pöddur þetta eru, þetta eru einhverskonar badbugs eða einhvað í þá áttina, veit lítið annað um þær.

En ég verð að fara núna, þarf að fara á pósthúsið og fleira stúss áður en ég þarf að fara að ná í strákanna. Ég ætla að reyna að skrifa meira á morgun um ferðina sem ég fór í til San Francisco síðasta sunnudag og hvað ég og María lentum í síðasta mánudagskvöld!! Það var nú meira ævintýrið en ég verð að skrifa um það seinna. Þanngað til seinna ;)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home