Halloween
Eins og kannski nokkur af ykkur vita var Halloween um síðustu helgi og er það ferkar stór hátíð hérna. Það eru fullt af partýum og allir dressa sig upp og læti. Á sjálfri hrekkjavökunni fór ég í skólan hjá Jeremy (yngri strákurinn) til að sjá árlegu Halloween parade sem er haldin þar. Yngstu börnin voru aldörar rúsínur og auðvitað voru þau öll sæt og sum svolítið scary (búningarnir voru scary ekki börnin)!! Rétt eftir hádegið fór ég aftur í skólan hans Jeremy því ég var búin að bjóðast til að hjálpa með Halloween party sem einn af bekkjarfélugum hans Jeremy´s var með. Er nebbla að vinna mér inn nokkrar einingar með því að vera í smá sjálfboðavinnu í skólanum hjá honum. Eftir að við komum til baka í skólan fórum við beint að ná í Simon (eldri strákinn). Það var farið yfir heimavinnuna og svo fóru þeir með Helen (mömmu þeirra) til San Fran. Þau fara árlega til vinafólks og sníkja nammi með þeim.
Ég var ekki alveg á þeim buxunum að fara með þeim svo ég ákvað að gera önnur plön. Ég var að vinna alla síðustu helgi og þurfti smá frí frá strákunum í eitt kvöld. Svo ég ákvað að fara út með Maríu og einhverjum fleirum bara hérna nálægt og var búin að kaupa mér búning, ég var Vampíra!! Þegar ég var á fullu að gera strákanna klára hringir Martina í mig og spyr hvað ég ætli að gera um kvöldið, ég segji henni frá því sem ég ætlaði að gera og hún spyr mig hvort ég vilji ekki frekar fara með henni til San Fran og fara á Castro!! Castro er samkynaðasta gata í San Fran og það er alltaf einhvað um að vera þar, þar á meðal ein stærsta skrúðganga fyrir gaypride eru haldnar þarna!! Svo þar sem ég hef alltaf gaman að því að fara og sjá einhvað nýtt ákvað ég að fara. Uþb 3 tímum seinna eru ég Martina, Ewa, María og Daniela á leið til San Fran. Við fundum bílastæði við hliðiná Hostelinu hans Olla (frá Bretlandi, kynntumst honum í Santa Barbara), fundum leigubíl og ferðinni heitið til Castros. ÞAÐ var magnað að ver efst í brekkunni fyrir ofan Casto og horfa á allt liðið þarna! Ég gat varla labbað því það var svo mikið að skoða að augun á mér áttu ekki undan við að líta á einhvað nýtt á 5 sek. fresti!!!
Við vorum þarna í nokkra tíma og skemmtum okkur mjög vel. Þótt sumir hafi farið örlítið í taugarnar á mér því þegar þær voru að taka myndir þá áttum við að bíða en þegar við vildum taka myndir þá var ekki hægt að bíða! Var orðin frekar þreytt á þessum tveimur áður en ferðinni var heitið heim!! Ég var komin heim um hálf 3 leitið um morguninn og svaf í rétt rúma 3 tíma en þetta var vel þess virði :o) Hefði alls ekki viljað missa af þessu!! Ef þið eigið einhvern tíman leið um San Fran um 31 okt þá ættuð þið endilega að kíkja á Castro, ættuð nú eiginlega bara að kíkja á Castro vegna þessa að það er geðveik gata og mikið að sjá. Hef líka heyrt að það er mikið af góðum veitingahúsum þarna.
Annað í fréttum er að ég var í sjálfboðavinnu aftur síðasta miðvikudag. Aftur með bekknum hans Jeremy´s, við fórum á listasafnið hérna á háskólasvæðinu ásamt því að sjá Hoover turninn sem er einnig hérna á háskólasvæðinu. Þetta var gaman þrátt fyrir dundrandi hausverk eftir á ;) Er að fara að djamma í San Fran annað kvöld því Martina á afmæli í næstu viku. En jæja klukkan er orðin margt og þetta er orðið nógu langt. Skrifa aftur fljótlega, var mjög upptekinn í þessari viku svo þess vegna var ekkert skrifað.
Góða helgi og góða skemmtun hvað sem þið ætlið að bralla um helgina ;)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home