Birna

Wednesday, November 23, 2005

Las Vegas

Já ég veit hef verið algör letingi og svo hef ég verið frekar upptekin. En ég fót til Las Vegas föstudaginn 11 nóv og var í eina nótt. Ég fór með fjölkyldunni minni og við vorum á ótrúlega flottu hóteli með öllu!! Við lentum um 10 leitið um morguninn og fórum á hótelið og fengum herbergið okkar og skoðuðum okkur aðeins um því hótelið er svolítið frá aðalgötunni en þau bjóða uppá shutle ferðir þanngað. Við tókum fyrstu ferðina kl.1 og þá byrjaði gamanið! ÞAÐ var ótrúlegt að sjá allt saman, sérstaklega því maður er búin að sjá svo margar myndir og heyra svo margt. Ég gat ekki hætt að taka myndir og vonadi get ég farið að setja þær inn hérna, hefur gengið illa að finna góðan síðu undir myndirnar. Við löbbuðum um og fórum inn í M&M World, Coca-Cola búðina, horfðum á rosalega flottan brunn sem er með einhverskonar sýningu. Sá New York, New York, litla París og margt meira. Hlakkar ekkert smá til að fara aftur og sjá enn meira því ég náði ekki öllu :( En þetta var samt alveg ótrúlega lífreynsla :o)

Um kvöldið pöntuðum við herbergisþjónustu og horfðum á video. Ég fór reyndar aðeins í casionið á hótelinu til að prófa að veðja, maður getur ekki farið í stærstu spilaborg í heimi án þess að prófa! Ég byrjaði á því að labba um og sjá hvað var í boði, var nebbla að hugsa um að prófa póker en það var svo ruglingslegt þarna svo ég ákvað að prófa Black Jack, aka 21. Af því að ég ætlaði bara að eyða $20 þá þurfti ég að finna borð sem bauð upp á það eða lærra. Ég fann eitt með $15 og ég fyldist með í nokkurn tíma áður en ég settist og spurði hvort ég gæti ekki tekið einn leik. Jújú ekkert mál, þurfti bara að bíða eftir að hún myndi stokka aftur. Ég var svo augljóslega að gera þetta í fyrsta sinn að allir við borðið voru að hjálpa mér :o) Til dæmis þegar ég var að kíkja á spilin þá notaði ég báðar hendur en maður má víst bara nota eina. En til að gera þetta stutt á tapaði ég $15 á nokkrum mín. Fór svo bara í nokkra spilkassa, var reyndar frekar fúl því þeir taka ekki klink lengur heldur er þetta allt orðið tæknilegt og þeir taka $1 eða þú getur keypt kort og fyllt á það að vild!! Allt frekar furðulega tæknilegt, meira að segja gömlu konurnar sem ég var búin að sjá fyrir mér, allar með þessi kort og voru í gallabuxum og bol en ekki í rósóttumkjól!! Var frekar spæld en auðvitað breytist allt saman einhvern tíman.
En ég skemmti mér vel þótt ég hafi verið að vinna mest allan tíman og get ekki beðið með að fara einhvert fljótlega aftur :o)

En ég verð að fara núna, lofa að skrifa meira í annað hvort í dag eða á föstufdaginn. Já og endilega kíkið á þennan link, ekkert smá fyndið ;c)
http://www.bananabunker.com/

0 Comments:

Post a Comment

<< Home