Washigton DC og fleira
Jæja þá ætla ég að byrja aftur að segja ykkur frá Washigton DC og Philadelphia. Við flugum til Philadelphia föstudaginn 9 des og lentum eldsnema á laugardagsmorguninn. Við vorum þar allan daginn að hitta ættingja strákanna í föðurætt, þeir hafa ekki hitt ömmu sína og afa í 4 ár útaf skilnaðinum. Það sem ég hef fengið að vita þá var þetta mjög harður og leiðinlegur skilnaður og sumt af því stendur enn yfir því pabbi strákanna er algör hálfviti, segji það ekki að ástæðulausu!
En allavegna þá var þetta mjög skemmtilegur dagur og við skoðuðum pínulítið af miðborg Philadelphiu og líkar mér mjög vel það sem ég sá. Langar að fara aftur til að skoða meira en valdi að vera með þeim frekar en að fara ein að skoða. Var mjög þreytt eftir flugið, náði ég ekki að sofa almennilega í vélinni og bakið var í hnút. Við fórum með lest til Washigton DC og komum þar seint um kvöldið og vorum úrvinda eftir allt þetta ferðalag og ég rétt náði að koma mér í náttföt og var sofnuð áður en höfuðið snerti koddan. Á sunnudeginum var sofið aðeins út og Helen fór með strákanna að skoða Hvíta húsið og margt annað áhugavert á meðan fékk ég 4 tíma fyri sjálfa mig. Ég labbaði aðeins um í nágrenni við hótelið og naut þess að vera aðeins ein, var búin að vera að vinna geðveikt mikið þessa viku og var svolítið þreytt. Þegar þau komu til baka þurfti Helen að fara að vinna og strákarnir þurftu að vinna aðeins í heimavinnunni sinni, það var vika eftir áf skólanum þegar við fórum svo þeir tóku heimavinnuna með sér og þurftu að klára því sem var skamtað áður en við fórum einhvert. En þegar þeir vorum búnir þá voru þeir of þreyttir til að fara einhvert með mér að skoða, en þeir höfðu þrek í að fara og ná í pizzu! Svo fyrsti dagurinn fór í ekkert merkilegt og sá ég ekkert merkilegt í ein merkilegustu borg veraldar. Á mánudeginum var klárað heimavinnuna og svo var ferðinni heitið í dýragarðinn og sáum við órtúlega sæta pöndu en allur dagurinn fór í að skoða garðinn og ekki fékk ég að sjá Hvíta húsið eða einhverja minnisvarða þann daginn. Þriðjudagurinn byrjaði eins og mánudagurinn með lærdómi og svo var ferðinni heitið á flugvéla og geim safnið sem var ekkert smá cool. Ég held að ég hafi skemmt mér meira en strákarnir og svo sá ég US Capitol og Washigton Monument í þessari ferð.
Á miðvikudagsmorgninn var vakanað snema því við þurftum að tjekka okkur út fyrir hádegi og mig langaði nú að sjá Hvíta húsið og fleira áður en við þurftum að fara klukkan 2! Ég var tilbúin um 10 leitið en strákarnir voru svo ekki að nenna að ganga frá svo ég gekk frá þeirra dóti líka svo við gætum farið. Við löbbuðum útaf hótelinu korter í 12 og áttum að vera komin aftur klukkan 2, frábært næstum því 2 tímar til að skoða. Ég var samferða þeim í neðarjarðarlestina en fór út einu stopi á undan því þau ætluðu á einhvað safn. Um leið og ég kom útaf lestarstöðinni sá ég að það var einhvað í gangi (var rétt hjá Hvíta húsinu), það var þessa því líka bílaröð sem fór framhjá rétt hjá mér og þetta er engin annar en forseti Bandaríkjanna. Það voru 2 límósínur sem voru sko ekkert venjulegar þær voru rosalega rimgerðar svo kom runan af jeppum og sendiferða bílum með sésveitar mönnum og skyttum, já þeir voru allir með byssur og læti. Ég tók myndir sem ég get sýnt ykkur og svo til að vera viss um að þetta væri Bush þá spurði ég kona sem var við hliðiná mér og hún sagði að þetta væri hann. Hún var nú ekkert mjög ánægð því það er greinilegt að í hvert skifti sem Bush fer einhvert þá er öll umferð stopuð! En eftir að hann var farinn framhjá og hans fyldarlið hélt ég áfram ferð minni að Hvíta húsinu og þegar ég kom upp að því sá ég sömu bílanna keyra í burtu frá Hvíta húsinu, það var ekkert smá cool. Ég tók mokkrar myndir og skoðaði aðeins um og kíkti svo á alþjóðlega jóltréið sem er beint fyrir framan Hvíta húsið og hélt svo ferðinni áfram í áttina að Lincoln Memorial. Það er bygginginn sem er hjá slettu lauginni og svo sérðu turnin í endanum, Forest Gump sýnir þetta rosalega vel þegar hann er að tala fyrir framan alla. En allavegan þá heitir byggingin Lincoln Memorial og laugin heitir Reflecting Pool og turninn heitir Washigton Monument. Sá líka minnisverða frá Víetman stríðinu og líka einn sem var gerður af seinni heimstyrjöldinni, þetta er ekkert smá flott gert og vel skipulagt. Ég náði að labba þetta allt og skoða vel á einum og hálfum tíma sem er algört met, ég dreif mig til baka til að geta keypt bol af götusölu manni rétt hjá hótelinu en hann var farinn þegar ég kom til baka því það var geðveitk kalt þann daginn. Svo ég fór bara á hótelið og beið, var komin 20 mín fyrir 2, settist niður og slappaði af :o) Þau komu loksins korter yfir 2 og var ferðinni heitið beint á flugvöllinn og vorum við komin heim um 10 leitið.
Þau fóru svo á skíði á laugardagsmorguninn í nokkra daga sem gaf mér tækifæri á því að anda og slappa aðeins af! Ég fór að djamma á laugardeginum í San Fran með Martinu, Ari (frá Brazilíu) og Val, eins og venjulega þá var gaman og ég varð ekkert of drukkinn því við fórum svo seint út. En við fórum heim til Vals eftir á og pöntuðum pizzu og horfðum á video. Sunnudeginum eyddum við í jólainnkaup í San Fran, þetta var ótrúlega skemmtilegur dagur, öll helgin var æðisleg. Fórum svo heim til mín og kveiktum eld í arninum og horfðum á video eða við gerðum góða tilraun, sofnuðum eiginlega strax (þær sváfu hjá mér það kvöldið því ég var ein heima). Mánudagurinn fór í þrif og fleiri undirbúning fyrir Orlando ferðina og svo á þriðjudeginum var slappað af og þau komu svo heim um kvöldið eftir skíðaferðina.
Jæja ég ætla að enda þetta núna og skrifa svo aftur mjög fljótlega um Orlando ferðina ;c)