Birna

Friday, December 09, 2005

Oregon

Ég vil byrja á því að segja að ég er ekki komin með kærasta, ég og Ryan erum bara vinir. Ég er ekki tilbúin að vera í sambandi, er enn að finna mig og hvað ég vil, vil klára það áður en ég fer útí einhvað!

Annað þá fór ég til Oregon síðustu helgina í nóvember með 3 öðrum Au Pairum. Ég, Martina, Ewa og Jan, Martina og Jan eru frá Tjékklandi og Ewa er frá Póllandi. Við leigðum bíl og lögðum af stað seinni part föstudags, vorum komin um hálf 12 á mótelið sem við áttu herbergi á, það tekur uþb 6 tíma að keyra. Við fórum beint að sofa svo við værum vel útkvíld um morguninn og gætum hafið ævintýrið. Við ætluðum að byrja á því að sjá Creater Lake og byrjuðum að keyra þanngað og alltaf varð jörðin hvítari og hvítar þanngað til að það byrjaði að snjóa!! Minn fyrsti snjór og ábyggilega sá eini á þessum vetri! Oregon er uppí fjöllunum og við vorum að fara lengra upp svo þess vegna var snjór. En við þurftum að stopa nokkrum mílum áður en við komum að Creater Lake vegna þess að það var maður þar sem sagði okkur að til að fara lengra þá þyrftum við að hafa keðjur á dekkjunum. Við vorum á bílaleigu bíl frá Californíu og það voru sko endar keðjur með honum og það sem meira er þá var bílinn ekki ferðbúin að vera í snjó. Svo við ákváðum að gera það besta úr þessu öllu og fórum í snjókast, rendum okkur á stigaskónum í hálkunni og hlóum eins og vitleysingar. Þegar við vorum búin að fá nóg og orðin frekar köld var ferðinni haldið til baka þar sem við höfuðum séð veitingahús því það var vel yfir hádegi og við svöng eftir allt snjókastið. Þetta var svona ekkta gamaldags matsölustaður sem búin til eins og kofi svo það var ekkert of heit þarna inni en góður matur. Það voru nokkrir staðir þarna í kring sem við fórum að skoða, til dæmis Rough River og Natural Bridge svo einhvað sé nefnt. Þegar við vorum á leiðinni til baka var stopað í verlslun til að kaupa bjór og snakk og svo fórum við á mexikaskan stað þar sem við áttum afslátt vegna þess að við vorum á Móteli 8 sem er hinum megin við götuna. Við fengum geðveikar margarítur og góðan mat. Fórum svo á mótelherbergið dauðþreytt, horfðum á Braveheart, drukkum bjór og rotuðumst hvert á eftir öðru.

Við vorum frekar löt á sunnudaginn en skráðum okkur nú samt út á tíma, fórum að versla smá þar sem það er endin söluskattur í Oregon eins og í Californíu. Þegar við vorum búnar að versla smá, allt í sömu búðinni var ferðinni heitið á vínekru því mig langaði að skoða og kaupa mér eina góða flösku. Þegar við loksins komum þanngað, viltumst smá og það var mér að kenna :/ En við komum þangað og fengum að vita að túrin fyrir þenna dag var að enda!! Frábært, loksins þegar við komum þá er túrin búin, það er svo ekta ég að vera svona óheppin. En sem betur fer buðu þau okkur uppá minni túr og var það mjög skemmtilegt og fræðandi og ég keypti eina góða hvítvíns flösku fyrir sérstakt tækifæri og hvað er betra en afmælið mitt :o)

En þegar við vorum búin að skoða og ég búin að kaupa flöskuna (fékk afslátt meira að segja) þá var ferðinni heitið heim, enda 6 tíma keyrsla. Það var stórskostlegt útsýni þegar við vorum að fara yfir fjöllin og við gátum ekki hætt að taka myndir og dást af útsýninu! En við komumst heim heil á höldnu og vorum öll sammála um að þetta hafi verið frábær ferð og einmitt það sem þurftum!

Annað í fréttum er að ég fór á djammið síðasta föstudag í San Fran, fór með Martinu, Val, Ryan og fleira fólki. Við skemmtum okkur vel eins og venjulega, ég veit ekki hvað þetta er en síðan ég byrjaði að fara á djammið með Martinu og Val þá hef ég verið að taka skot. Það er sko einhvað sem ég hef ekki gert mikið af því í langan tíma ;c) Hey já mér var boðið far í Ferrari en ég ákvað að fara ekki því ég var drukkin og hvað er fyrsta reglan þegar maður er drukkinn? Ekki yfirgefa vini þína því þú veist aldrei hvað gæti komið fyrir!!

Annað að frétta er að ég er að fara til Washington DC í kvöld, hlakkar ekkert smá til að sjá allt en ekki að ég þurfi að vera að vinna allan tíman! En þetta verður gaman og algör upplyfun :o)
Já og svo er ég búin að kaupa miða til að fara til Olando á Flórída að hitta pabba um jólinn! Svo viku eftir að ég kem heim frá DC þá flýg ég til Orlando. Það er nú meira ferðalagið á mér og hef ég rétt tíma til að taka uppúr töskunni þegar ég þarf að pakka aftur ;c)
En núna þarf ég að fara, þarf að senda jólkortin áður en ég fer. Svo ég skrifa aftur þegar ég kem heim. Farið vel með ykkur.

1 Comments:

Post a Comment

<< Home