Birna

Tuesday, January 24, 2006

Orlando, Flórída

Fyrirgefið hvað ég er ekki búin að vera dugleg að skrifa, er búin að vera upptekin við það að djamma og vinna líka :o) En allavegna hérna er Orlando, það er búið að vera í vinslu síðum um áramótin og loksins kláraði ég.

Þá er maður búin að sjá Orlando og fara í Disneyland :o) Ég flaug miðvikudaginn 21 des og hitti pabba, Ingu og strákanna á flugvellinum. Leigðum bíl og svo var ferðinni heitið í þetta umtalaða hús sem hann faðir minn fjárfesti í þarna með vinum sínum. Þetta er geðveikt cool hús ef ég á að segja eins og er, það eru 3 svefnherbergi. Eitt aðal með sér baðherbergi en hin deila baðherbergi sem er á milli herberganna, eldhúsið er kósí og stofan og borðstofan er ferlega lekkert. Það er geðveikt flott sundlaug með gosbrunn og svo er bílskúr. Þau voru mjög þreytt þegar við komum þanngað svo það var farið að sofa mjög fljótlega eftir komuna. Um morguinn vaknaði ég við frekar hátt stilta tónlist, teknó til að vera nákvæm, ekki mín uppáhalds tónlist en það er ekki málið heldur að hverjum dettur í hug að stilla græjurnar svona hátt eldsnemma um morgun!! Júbb það voru strákarnir og það var ekki svo snemma fyrir þá því Ísland er 5 tímum á undan Orlando en ég er 3 tímum á eftir og klukkan var næstum 9 um morgun!

Það var lítið gert á fimmtudeginum nema verslað, keypti tvenna skó (pabbi borgaði reyndar ;c) ) og farið í handsnyrtingu með Ingu. Föstudagurinn byrgjaði alveg eins og fimmtudagurinn, var vakinn við háværa tónlist, þetta er víst aðferð sem Inga notar til að vekja upp fólk. Hefði nú kosið að það hefði verið banka fyrst en fólk er misjafnt og verður maður nú að virða það. Við drifum okkur á fætur til að fara í Disneyland, byrjuðum í Magic Kingdom og það var FRÁBÆRT. Mér leið eins og ég væri 10 ára aftur og gat ekki hætt að skoða allt og taka myndir, tók 78 myndir bara í Magic Kingdom!! Þetta var einn besti dagur sem ég hef lifað og mun ég aldrei gleyma þessu og þakka ég pabba margfalt fyrir að taka mig með þeim til Orlando :o) Við fórum í Splash Mountain, það er bátsferð sem dettur svona niður óvænt og þá er tekin mynd, við erum geðveikt halló en það er bara gaman. Við vorum þarna frá 10 um morguninn til 10 um kvöldið. Ég sá jólaskrúðgönguna sem er með öllum helstu karakterunum, jólasýninguna sem er dans og söngur, ljósasýninguna sem er skrúðganga en allt er búið til úr ljósum og er geðveitk coool og svo auðvitað flugeldana sýninginn í endan sem er yfir kastalann. Talandi um kastalann þá var þetta draumur að rætast að sjá hann með eigin augum og alla ljósa dýrðina um kvöldið. Held ég hafi lýst Magic Kingdom eins vel og ég get í orðum, myndirnar tala betur og er ég enn að vinna í því að koma upp myndasíðu.

Disney Epcot er líka frábær staður en samt allt öðruvísi en Magic Kingdom. Í Epcot eru margar borgir og ferðu frá Mexíkó til Noregs svo til Kína síðan Þýskaland síðan Ítalíu, USA The American Adventure síðan til Japans, Mórakó, Frakklands, Englands og endar í Kanada! Það er alveg frábært að labba þarna í gegn og sjá þetta alllt. Já og svo fólkið sem vinnur þarna er frá því landi svo þetta er mjög nálægt að vera ekta, maður sinnst það allavegna!

Ég flaug eldsnemma á mánudagsmorgun og var heima í klukkutíma áður en ég byrjaði að vinna. Er búin að vera frekar upptekinn síðan þá, á fullu að vinna því það hefur sjaldan verið jafn mikið að gera hjá Helen. Já og svo fer ég auðvitað út á hverjum laugardegi (Helen fer út á föstudögum og ég á laugardögum), það þýðir ekkert að hanga heima ;c)

En ég ætla að skrifa aftur mjög fljótlega því það koms svo lítið krassandi fyrir þessa helgi og einn af draumum mínum uppfyllist núna um næstu helgi!! Þið verðið bara að bíða og lesa fyrr en seinna hvað er í gangi. En þangað til þá farið vel með ykkur.

Monday, January 02, 2006

Gleðilegt nýtt ár

Ég vona að allir hafi átt frábær áramót! Við vorum með party hérna og skemmtum við okkur konunglega.Það var dansað skoskan dans og ég prófaði og var bara nokkuð góð víst :o) En við drukkum, borðuðum og dönsuðum gamal árið á enda og fögnuðum nýju með því að syngja gamalt skoskt lag sem er hefð að syngja í Skotlandi um leið og nýja árið gengur í garð.
Ég get ekki beðið að vera heima um næstu jól og áramót því ég sakna allra og okkar siðum! Farið vel með ykkur og ég skrifa fljótlega um Orlando.