Birna

Tuesday, March 21, 2006

Búin að fá myndavélina mína :o)

Ég er loksins búin að fá nýju myndavélina mína og ég er orðin súper spennt fyrir því að mamma er að koma. Það eru ekki nema 17 dagar í hana (þriðjudag)!!

Myndavélinn sem ég keypti er Canon Power Shot SD450, 5.0 mega pixels og með 3x optical zoom. Vélin er með bestu smá digital myndavélunum á markaðinum og með bestu notenda einkunn. Svo ég held að ég hafi valið rétt, enda búin að vera að skoða myndavélar í meira en ár núna.

Annars er ekki mikið í fréttum fyrir utan það að ég er að fara til San Diego 1 til 2 apríl með fjölskyldunni!! Ég flýg með strákunum snemma á laugardags morgun og aftur heim á sunnudagskvöldið og við förum í LEGO-land og ég fæ að skoða borgina aðeins á laugardeginum þegar við komum. Helen er að fara á einhverja ráðstefnu og fannst tilvalið að fá okkur yfir eina nótt og svo kemur hún heim á miðvikudeginum. Og svo á föstudeginum þá fara þau til Skotlands og ég fer til LA að hitta mömmu! Mamma hennar Helenar er veik, það fannst aftur krabbi í maganum á henni og er búist við því að hún fari fljótlega. Helen fór akkúrat í dag til Skotlands í 3 daga því henni hrakkaði svo rosalega á aðfara nótt sunnudags og læknirinn ráðlagi henni það ef hún vildi kveðja. Þetta er allt saman svo sorglegt, við erum búnar að vera að reyna að segja strákunum ekki of mikið fyrr en núna og þeir eru ekkert að taka þessu of vel eins og við mátti búast. Svo næstu daga hef ég það verkefni að halda þeim uppteknum og allir vinir og vandamenn hennar Helenar eru tilbúin að hjálpa mér eins mikið og ég þarf, tildæmis ætlar guðfaðir Simon´s að koma með kvöldmat annað kvöld. Svo við erum ekki ein og er ég mjög fegin þótt að ég þurfi yfirleitt ekki á henni að halda, það er bara gott að vita að maður er ekki einn :o)

En jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra því klukkan er 10 um kvöld og ég þarf að fara í sturtu og sjá til þess að Simon fari að sofa á skikkanlegum tíma. Farið vel með ykkur og ég skrifa seinna þegar ég hef tíma.

Wednesday, March 08, 2006

Þorrablót og bilaður bíll

Ef ég að að lýsa Þorrablótinu í einu orði þá var það FRÁBÆRT :o) Ég fór með Melkorku, Val og Nishu, stelpunni sem við hittum á speed-dateinu. Þetta var ekta íslenski með tveimur eldri mönnum að spila á hljómborð og gítar, við vorum með söngtexta og svo var farið í hringdans og allir sungu með (nema kanarnir). Það var rúgbrauð, flatkökur, kæfa, harðfiskur og missmunadi síld í forrétt. Aðalrétturinn saman stóð af reyktum og gröfnum lax, hreindýra paté, kartöflum, salati, soðnu grænmeti, brúni sósu og svo auðvitað lambakjöti frá Nýja Sjálandi því það íslenska var stopað í tollinum og íslenska brúna sósan sem þeir voru með með sér!! Ekkert smá hallærislegt en við eigum víst að geta keypt það í einhveri Norðrænni búð í þessari viku svo maður ætlar að reyna að kíkja ef maður hefur tíma. Annað um Þorrablótið, það var geðveikt gaman að sjá hvað við erum mörg hérna og við fengum nokkur númer til að vera í sambandi og reyna að hittast. En maður veit ekkert hvernig það fer því íslendingar eru nú ekkert þeir bestu til að halda einhvað svona! Ha, gleymi alveg að segja ykkur að ég tók Brennivíns pela með mér og var að hella í glös undir borðinu sem er EKTA EKTA Íslenskt ;c)

Annað í fréttum er að bílinn minn bilaði í dag! Það kom allt í einu reykur undan húddinu þegar ég var að fara að leggja af eftir að hafa keyrt hjólinu hans Simons til hans eftir skóla og var ég með Jeremy og Beccu (nágranna stelpuna) í bílnum. Ég var sem sagt að fara úr stæðinu sem ég var í þegar ég sé þennan reyk svo ég legg í næsta stæði og kíki undir húddið og sé eina af slöngunum að vélinni leka geðveikt. Ég ákvað að hringja í Helen og spurja ráða en þá sé ég jeppa stopa fyrir aftan mig og ég bið hann um hjálp. Hann kíkti á þetta og var að reyna að segja mér hvað var að en hann er frá mexíkó svo við biðum eftir börnunum hans og þau þýddu fyrir okkur og hann ráðlagði mér að leggja bílnum og láta dragan á verkstæði. Ég legg bílnum betur og hringi tvisvar í Helen á þess að fá svar svo ég hringi í mömmu hennar Beccu og skil eftir skilaboð. Þegar við vorum búin að vera þarna í næstum því klukkutíma þá hringir Gina (mamma Beccu) í mig og segir mér að hún sé á leiðinni að sækja okkur og að maðurinn hennar sé að reyna að ná tali af Helen því þau vinna saman. Við erum á leiðinni heim þegar Helen hringir og hún segist ætla að koma heim til að hjálpa mér að redda bílnum á verkstæði. Jeremy (yngri) fer heim til nágranna okkar svo ég þurfi ekki að vera að hafa áhyggur af honum líka. En til að gera þetta of langt þá fékk ég leyfi til að fara með bílinn á verstæðið sem við notum alltaf, ég hringdi á dráttar bíl og Helen keyrði mig að bílnum. Þegar við vorum á leiðinni var hringt í mig og sagt að hann væri komin og myndi bíða í 5 mínútur og við vorum fastar í umferð, frábært! Svo við hringjum aftur í þá og biðjum þá að bíða í 5 mínútur í viðbót, þegar við vorum að bíða eftir ljósinum til að beygja inn í götuna sjáum við að hann er að leggja af stað svo ég stekk úr bílnum til að stopa hann og næstum drap mig í leiðinni!! Það er nú ekkert nýtt og fannst manninum þetta bara fyndið. En allavegna þá dró hann bílin og keyrði mig heim því ég var svo skemmtileg. Hann er fæddur ´83 og ég held að hann hafi bara keyrt mér heim því ég held að honum hafi fundist ég vera sæt ;c)

Annað þá er ég að fara í leikfanga partý á laugardaginn, já þetta eru fullorðins leikföng :o) Nisha bauð okkur og svo förum við kannski á kúreka staðinn aftur því það eru ekkert smá sætir strákar þarna!
Verð að fara, Melkorka er hérna og við erum að fara að horfa á Amazing Race. Farið vel með ykkur og skrifa aftur fljótlega og ekki gleyma að það eru 31 dagur (þriðjud.) þanngað til mamma kemur að heimsækja mig!!

Saturday, March 04, 2006

Komin með tölvu aftur :o)

Jæja þá er talvan loksins komin í lag aftur og eins og venjulega einhvað spennadi í gangi hjá mér um helgina. Er að fara á Þorrablót í kvöld og er geðveikt spennt, við Melkorka erum ekki búnar að tala um annað síðustu vikuna!! Valur og Nisha vinkona okkar (hittum hana á speed-dateinu) ætla með okkur og við förum mjög líklega að djamma eftir á, svona ekta íslenskt djamm ;c) Við Melkorka ætlum aðeins að dekra við okkur áður en við förum og erum að fara í fótsnyrtingu og fá okkur gelneglur í dag, við þurfum smá hvíld því við erum báðar búnar að vera að vinna mikið þessa vikunna. Ég er búin að vera að vinna mikið með Önnu (núna 7 mánaða), mamma hennar er að bæta við sig í vinnunni svo hún þarfnast mín eins mikið og ég get unnið. Sem er bara frábært fyrir mig því ég er að fara að panta nýju myndavélina mína strax eftir helgina, hún kostar $420 dollara með öllu!!

Annað í fréttum er að mamma er að koma eftir 34 daga!! Ég er svo spennt að ég er að springa, altaf þegar ég hugsa um að hún sé að koma þá fæ ég fiðring í magan :o) Þarf að fara að byrja að pakka því ég ætla að biðja mömmu um að taka einhvað af dótinu mínu með sér heim svo ég þurfi ekki að senda það. Maður þarf að fara að byrja að hugsa um þetta allt því 6 mánuðir eru ekki það lengi að líða þegar það er alltaf einhvað að gera.

Meira sem er að frétta af mér þá endaði ég þar sæiðustu færslu á commenti um svía sem ég hitti. Málið er að eftir speed-dateið þá fórum við út að borða með 2 gæjum frá speed-dateinu og einni stelpu (Nisha, hún er frá New Jersey). Eftir matin fórum við á einhver bar sem er kallaður "V-Bar", ég sat á einum stól þar því ég var geðveikt þreytt og þá kom bara einhver gaur og byrjar að tala við mig. Ég komst að því að hann væri svíi og hann heitir Stefan og hefur búið hérna í um 10 ár, ég gaf honum síman hjá mér því hann var að segja mér frá einhverju norðulanda félagi. Hann hringir í mig næsta dag (sunnudag) og við fórum út á þriðjudegi og svo vikunna á eftir þá bauð ég honum og vinum hans með mér og vinum mínum á kraókí bar sem við förum á annaðs slagið á miðvikudögum. Hann er mjög skemmtilegur, farsæll í starfi (vinnur hjá IBM) og bara yfir höfuð gaman að tala við hann en ég er ekki hrifinn af honum og við erum bara vinir núna. Fórum á einhvern kúrekastað síðasta föstudag, þau voru öll þarna og ég kom þegar ég var búin að vinna og þá var hann reyndar farin því hann var veikur. En við erum kannski að fara á skíði næsta laugardag, það er ef ég verð í fríi og eigi pening til að eyða, er nebbla að spara fyrir ferðinni með mömmu svo maður er að reyna að halda í auranna núna!

Jæja þetta er að verða bara helvíti gott, er lika örðin þreytt enda klukkan rétt yfir 12 á miðnætti og maður er búin að vera að vinna í allan dag og maður þarf að vera hress annað kvöld ;c) Ég skrifa aftur fljótlega til að segja ykkur frá Þorrablótinu og hvað það var mikið af fólki þarna. Já gleymi alveg, vitiði hvað það eru margir skráðir í Íslendinga félagið hérna? 300 manns!! Svo það verður gaman að sjá hvað margir koma á Þorrablótið.
Farið vel með ykkur og við heyrumst fljótlega.