Birna

Thursday, April 06, 2006

San Diego

Ég var í San Diego um síðustu helgi með Helen og strákunum. Hún fór á föstudagskvöldinu en við fórum eldsnemma á laugardags morgninum og komum heim seint á sunnudagskvöldinu. Við vorum á geðveikt flottu hóteli við höfnina, það var frábært útsýni og svo var sundlauginn geðveikt flott og risa stór, það komast 191 manns fyrir í henni! Við fórum á Aircraft carier á laugardeginum, það er skip sem flugvélar geta lent á úti á hafi. Það var ekkert smá cool að sjá þetta allt saman og svo hittum við einn af hermönnunum sem var á þessu skipi og hann var að segja okkur frá því hvernig væri að vera á svona skipi og fleira. Hann var flugmaður og var að lýsa fyrir okkur hvernig þeir lenda þarna, þeir lenda samt eiginlega ekki, þeir meira svona brotlenda. Eins og maðurinn sagði: It´s a crash but it´s controled crash, it´s not like the airlines that try to make it kiss kiss smooth for us. Hann var geðveikt fyndinn þegar hann var að lýsa þessu öllu, það var líka mjög áhugavert að hlusta hann.

Á sunnudeginum fórum við í LEGOland, eða þau fóru og ég var samferða þeim því mig langaði að sjá LEGOland líka :o) Þetta er svona meira fyrir börn en ég hafði mjög gaman af því að labba um og skoða allt. Það er alveg ótrúlegt hvað þeir hafa byggt úr LEGO, þeir gerðu svona miniland sem er með öllum helstu borgum Bandaríkjanna og það er ekkert smá cool. Tók fullt af myndum með nýju myndavélinni minni og mun ég setja þær inn seinna í dag svo þig getið skoðað. Því myndir segja meira en þúsund orð ;c)

Annað í fréttum er að mamma er að koma á morgun og mér hlakkar ekkert smá til! Við verðum í Hollywood á afmælinu mínu sem er á laugardaginn :o) Mér finnst svo gaman að eiga afmæli, ég er búin að bjóða 15 manns að hitta okkur á einum af mínum uppáhalds veitingastað 15 apríl til að halda upp á afmælið mitt.

En ég verð að fara núna, þarf að leggja mig áður en ég þarf að fara að stússast. Fór seint að sofa því við vorum með kveðjupartý í gærkvöldi handa Ewu vinkonu okkar frá Póllandi. Hún er búin að vera hérna í 2 ár sem Au Pair og maður á eftir að sakna hennar geðveikt, en ég veit að ég á eftir að hitta hana aftur :o) Ég mun skrifa aftur um leið og ég kem úr ferðinni með mömmu. Farið vel með ykkur og endilega að commenta svo gott fólk.

2 Comments:

  • At April 06, 2006, Anonymous Anonymous said…

    Hvad atti ekki ad leggja sig :) Tu hefur nu gott af tvi :) Eg er einmitt ad setja inn myndir fra tvi i gaerkvoldi :)Love ya

     
  • At April 12, 2006, Anonymous Anonymous said…

    Bíbí! ég þarf nauðsynlega að tala við þig!! hafðu samband sem fyrst!!

     

Post a Comment

<< Home