Birna

Sunday, May 21, 2006

The Black Eyed Peas og fleira

Ég, Melkorka og Martina fórum á geðveika tónelika um síðustu helgi og svo eftir tónleikanna fórum við til San Fran að hitta Val og fengum við að gista því Valur er svo rosalega góður vinur, takk Valur.

Allavegna þá var ekkert smá flott show sem þau settu upp, ljósin, breytileg sviðsmynd og svo auðvitað léku þau sum lögin gerði það að verkum til að gera kvöldið ógleymanlegt!! The Pussy Cats Dolls hituðu upp og spiluðu þær í 30 mínútur en Black Eyed Peas spiluðu í 2 tíma svo það var vel þess virði að borga næstum því $50 dollara fyrir miðan. Sátum reyndar svolítið langt í burtu því við keyptum miðana ekki fyrr en 2 vikum áður svo.. Í staðin fyrir að vera að segja einhvað meira um tónleikanna þá tók ég fullt af myndum og nokkur video (sem ég þarf að finna út hvernig eigi að setja inn á netið), svo núna verið þið bara að kíkja á myndirnar :o)

Svo á sunnudeginum eftir tónleikanna fórum við að einhveri á í national forest sem tók næstum því 2 tíma að keyra til. Ég, Melkorka, Jan og Kristie (ný stelpa frá Malasíu) vorum í einum bíl og svo voru 2 Tyrkneskir strákar sem Melkorka þekkir í hinum bílnum ásamt einhverri vinkonu þeirra. Það var gengið í 45 mín til að komast að ánni, þar borðuðum við hádegismat og svo var synt, gegnið og smá klettaklifur til að komast aftur að bílunum. Þetta var erfitt og varð ég svolítið hrædd á tímabili því ég hef aldrei synt í á áður og brá svolítið þegar ég synti á steina eða þegar ég sá ekki í botnin því það var svo djúft! En þetta var algört ævintýri og einhvað sem ég vil ekki endurtaka nema að vera betur undirbúin, það er í betri skóm og með einhvað sem flýtur til að hjálpa manni að synda í ánni.

Jæja held að þetta sé allt sem er að frétta af mér núna. Ég hef það mjög gott, veðrið alltaf að verða betra og betra fyrir utan smá rigningu sem á að vera næstu 3 daga! Mér hlakkar alltaf meira og meira til að koma heim, það er minna en 4 mánuðir í mig, vá hvað tímin flýgur!!
Ætla að hætta núna og fara að koma mér í rúmið, hún er að verða eitt um nótt og ég er þreytt því ég er eiginlega að vinna alla helgina. Læt heyra í mér fljótlega og endilega að commenta fólk, góða nótt.

Wednesday, May 10, 2006

Ég er á lífi

Fyrirgefið hvað maður er ekkert búin að blogga lengi!! En ég hef góða ástæðu ;c) Fyrst kom mamma og við fórum í vikuferðina okkar sem var algört ævintýri. Fyrst missti mamma af fluginu frá Boston því fluginu frá Íslandi seinkaði, en sem betur fer reddaðist þetta allt og kom hún daginn eftir sem var afmælisdagurinn minn :o) Svo á sunnudeginum byrjaði ferðinn þar sem við sváfum 4 nætur í tjaldi, eina nótt á móteli og eina á farfuglaheimili. Það tekur alltof langar tíma að segja frá allri ferðinni svo ég læt bara myndirnar tala sínu máli, er búin að setja þær inn fyrir löngu svo endilega að kíkja! Mamma var hérna í nokkra daga og sá alla vini mína og sá hvernig lífi ég lifi hérna, það var gaman að sýna henni allt sem ég er að gera hérna. Það var samt erfit að segja bæ við mömmu aftur en ég get huggað mig við það að ég er að koma heim eftir rúma 4 mánuði!!

Annað í fréttum er auðvitað alltaf sama djammið á manni, maður málaði bæin rauðan um þar síðustu helgi. Ég og Melkorka fórum til San Fran að hitta Val sem var svo þunnur að hálfa var meira en nóg en við drógum mannin út. Við fórum á Bar None þar sem hún Áslaug vinnur og fengum við fría drykki hjá henni eins og venjulega, við íslendingarnir verðum að standa saman í þessum drykkjuskap hérna ;c) Eftir nokkra drykki var förinni heitið á Dragonbar þar sem vinur hans Vals vinnur, hann heitir Will, hann er frá skotlandi og hann býr hjá Vali núna því kærastan hans henti honum út. Allavegna þá leið Vali ekki vel svo hann fór fljótlega heim og við Melkorka bara einar eftir. Þegar staðnum lokaði þá var málið að reyna að fá leigubíl sem gekk ekkert of vel þar sem það var krökkt af fólki og Will gekk ekkert að redda okkur einum og hann þurfti að klára að vinna. Bara til að nefna þá var Melkorka edrú en mín vel í glasi að allt var rosalega dásamlegt. Þar sem mín er ekkert sú þolinmæðasta í glasi þá sneri ég mér við og fór að tala við einhverja stráka sem buðu okkur fari heim eftir mikið spjall. Ég í mínu besta skapi segi bara: jájá, afhverju ekki!! Melkorku leist nú ekkert of vel á þetta allt en hann Antony virkaði helvíti fínn og svo sagði ég honum að ef hann væri með stæla þá væri mér að mæta, lyfti honum til að sýna honum hvað ég er sterk (ég er algör þegar ég er drukkinn)! En við fórum í bílinn hans og keyrðum um með alla glugga niðri (sem var trausvekjandi) og svo má ekki gleyma rapp tónlistinni á fullu. Já gleymdi að minnast á að Antony sagði okkur að látu sig vita ef okkur langaði að fara úr bílnum ef okkur liði ekki vel, hann er geðveikt næs gæji. Við pikkuðum færnda hans upp sem leit ekkert smá gangstalega út og þegar ég hugsa um það þá hefði maður kannski átt að vera svolítið hræddur, Antony lítur líka svolítið út eins og einn en samt ekki eins mikið. En til að gera þetta stutt þá komust við heila á höldnu heim til Vals og það var pöntuð pizza og horft á video. Næsta dag var vaknað með smá þynnku og haldið heim til að fara að vinna smá.

Það er litið annað búið að vera í gangi að ég held, ekkert of merkilegt ef ég get ekki munað það svona í fljótubragði. Nema kannski að við reyndum að fara á bát um síðustu helgi en það gekk ekkert of vel, getið lesið um það ævintýri á blogginu hennar Melkorku því hún er miklu betri að blogga en ég. Já ég skráði mig í líkamsrækt í dag og 5 tíma með einkaþjálfara svona til að reyna að koma mér í gott form áður en maður kemur heim :o) Jæja helda að þetta sé allt svo ég skrifa aftur seinna og endilega að commenta svo ég viti hverir eru að kíkja á mig!
Farið vel með ykkur xoxo