21 September og San Diego
Ég hef mjög mikilvægar fréttir, ég er búin að ákveða daginn sem ég kem heim svo allir geta tekið sér frí ef þeir vilja ;c) Ég flýg heim 21 september sem er fimmtudagur en ég held að ég lendi ekki fyrr en á föstudeginum 22 september svo það verður djammað feit þá helgi!! Ég er svo spennt núna en samt er þetta geðveikt skrítið að vera búin að ákveða dag.
En allavegna þá fór ég til San Diego aftur núna um helgina með Nishu, Martinu, Lenku og Georg. Við lögðum af stað seinnt á föstudagskvöldinu og vorum komin til San Diego klukkan 9 um morguninn. Við vorum mest allan daginn í Sea World og borðuðum hádegismat meðan við vorum að horfa á háhyrninga sýningu sem var æðisleg. Við sáum alskonar sýningar, þar á meðal höfrunga og svo nokkurskonar sirkus sýningu sem var geðveikt cool. Þegar við vorum búin að vera þarna í meira en 9 tíma var ferðinni heitið á super 8 mótel þar sem við áttum pantað herbergi fyrir nóttina. Rétt eftir 11 vorum við öll geðveikt svöng enda ekkert almennilegt búin að borða síðan um 3 leitið þegar við fengum hádegismatinn svo við fundum símaskránna og byrjuðum að hringja út um allt og eini sataðurinn sem við fundum var einhver kínverskur staður. Svo við pöntum og við Lenka fórum að ná í matinn sem var algörlega óætur og þá meina ég óætur þar sem við vorum geðveikt svöng og hefðum getað borðað hvað sem er!! Við vöknuðum snema á sunnudeginum og fengum okkur mrogunmat á IHOP sem er mjög góður pönnukökustaður svo var ferðinni heitið í gamla bæinn sem er svo fallegur og byggingarnar svo sérstakar, ég keypti mér ekta mexíkanst teppi sem á eftir að setja skemmtilegan svip á þann stað sem ég mun búa á í framtíðinni. Síðan fórum við á World Famus í hádegismat og við stelpurnar vorum límdar við gluggana því strákarnir á ströndinni fyrir framan voru svo flottir að það var ekki eðlilegt. Og það sem er enn mikilvægara þá voru fleiri strákar á ströndinni en stelpur og guð minn hvað þeir voru vel vaxtnir :þ Eftir allt glápið var ferðinni heitið í gaslampa hverfið og svo á eyju sem heitir Coronado og þar er einn fallegasta strönd Bandaríkjanna, við horfðum á sólsetrið og það var svo fallegt, tók fullt af myndum sem fara inn mjög fljólega svo þið getið séð hvað ég á við.
Við stopuðum á leiðinni til baka í gamlabænum til að fá ekta mexíkanskan mat og svo var ferðinni heitið heim. Ætluðum fyrist að leggja af stað til baka í síðasta lagi um 9 leitið en við fórum ekki fyrr en rétt eftir 10. Þegar við vorum á leiðinni til baka tók Martina óvart exit á aðra hraðbraut og við viltumst í LA fyrir framan karla fangelsið!! Við þurftum að keyra í gegnum algört gettó til að komast aftur á hraðbrautina og almátturgur hvað allt var illalyktandi í þessu hverfi! En við komust aftur á hraðbrautina heil á höldnu og ég var komin heim 10 mín yfir 7 um morguinn svo ég rétt náði að skifti um föt og fór að vinna. Ég sem var að vonast til að koma Jeremy í sumarbúðirnar og fara svo heim að sofa þanngað til ég þurfti að ná í hann hurfu um leið og ég kom inn í eldhúsið. Helen sagði mér að Jeremy væri veikur og þyrfti að vera heima um daginn!! Svo ég var að vinna í 12 og hálfan tíma og ég var svo þreytt, ég reyndi að sofa í bílnum á leiðinni heim en það var ekki mikið! En ég lifði dagin af og svaf vel um nóttina og svo lagði ég mig líka í næstum þvi 4 tíma í dag.
En það er ekki meira að frétta af mér núna en ég ætla að reyna að vera duglegri við að skrifa. Svo farið vel með ykkur og endliega að commenta svo ég viti hverir eru að kíkja á mig :o)

1 Comments:
At June 30, 2006,
Anonymous said…
Eg kikji alltaf a tig og bid spennt eftir fleiri myndum :)
Post a Comment
<< Home