Get ekki beðið með að koma heim!
Ég sit í herberginu mínu með rosalega brunnið bak eftir strandarferð síðasta sunnudag og hugsa til allra heima. Það er orðið erfiðara að bíða með að fara heim því það eru bara 3 mánuðir þanngað til ég kem aftur heim. Samt eru 3 mánuðir ekkert miða við 2 ár, ef þú hugsar um það þá á ég eftir að vera í 3 helgarfríum í viðbót og ég er búin að plana 2. Ég er að fara til San Diego næstu helgi og svo langar mig að fara annað hvort til Yosemite eða Seattle í júlí, fer allt eftir því hvort ég fæ fólk í að fara með mér.
En allavegna þeir sem lesa bloggið mitt sáu kannski síðasta póst um það að ég gæti verið að fara að flytja! Ég verð hérna allavegna um sinn, ég ,ráðgafinn minn og Helen settumst niður og töluðum saman og núna eru hlutirnir aðeins betri. Helen er miklu betri og eldri strákurinn líka en Jeremy er alltaf eins en ég er að prófa nýtt og sjá hvernig það gengur. Hingað til hefur það verið pínu betra en hann fær enn sín köst sem ég er orðin frekar þreytt á og nenni ekki lengur að díla við. Svo núna veit Helen og ráðgafinn minn að ég ætla að reyna aðeins meira en ef það gengur ekki þá fer ég.
Svona til að segja frá einhverju skemmtilegu líka þá er ég búin að vera frekar upptekinn í félagslífinu og búin að setja inn fullt af myndum. Síðustu helgina í maí var Memorial weekend og fékk ég 3 daga helgi sem var meira en kærkominn. Á föstudeginum fór ég og Eva (frá Tjékklandi) til San Fran að djamma með Val og systur hans sem kom í heimsókn. Við fórum á Dragon Bar þar sem Will vinur Vals vinnur og þetta var ekkert smá skemmtilegt kvöld og nótt því Eva talaði eiginlega alla nóttina ;c) Á laugardeginum var reynt að losa sig við þynnkuna og farið í bíó með Nishu, við sáum X-men The Last Stand sem er ekkert smá góð og með geðveikum tæknibrellum. Á sunnudeginum fór ég, Eva, Nisha og Wicky á Carnival í San Fran og var meðal annars boðið upp á að prófa Drumm Circles sem var ekkert smá cool. Við sátum undir tjaldi og kennarinn var í miðjunni og var að kenna okkur, það voru 6 mismunadi trommur og var maður með dofna putta eftir smá tíma. Á mánudeginum fór ég, Nisha og Melkorka til Santa Cruz, það er strönd sem er í u.þ.b. 40 mín farlægð og mjög vinsæl. Það er nokkurskonar tívolí meðfram ströndinni sem við fórum fyrst í gegnum og svo enduðum við á ströndinni þegar tækin voru farin að fyllast of mikið. Við áttum rosalega nice og afslappaðan dag og ég og Melkorka fórum svo í bíó um kvöldið, við sáum M:I 3 sem var bara mjög góð miða við að þetta er Tom Cruise mynd (hann er ekki í uppáhaldi hjá mér).
Jæja þetta er nóg í bili, ætla að reyna að skrifa meira í kvöld því ég get ekki farið í ræktina meðan ég er svona brend svo ég hef tíma til að skrifa meira! Svo endilega commenta svo ég hafi nú meiri ástæðu til að blogga og kíkið á myndirnar, þær segja sína sögu ;c)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home