Birna

Tuesday, June 06, 2006

Gæti verið að ég fari að flytja!

Jæja þá er aldeilis búið að vera mikið í gangi því ég er að hugsa um að skifta um fjölskyldu. Er meira segja búin að segja ráðgafanum mínum frá því svo nú er bara að setjast niður með þeim báðum og þá fer ferlið í gang. Þegar ég er búin að segja henni frá þessu þá hef ég 2 vikur til að finna nýja fjölskyldu og ef það gengur ekki þá verð ég send heim!! Ég er svo hrædd núna því ég veit ekkert hvað á eftir að ske og að ég veit ekki einu sinni hvar ég verð eftir mánuð! En ég er búin að vera að skoða atvinnuauglýsingar heima svona til að skoða hvað er í boði. En samt langar mig mest til að vera hérna þanngað til í september, hvort sem það er hérna í Californíu eða einhvers staðar annars staðar í Bandaríkjunum. Langar svolítið að búa í miðju landinu, kannski einhvers staðar þar sem eru kúrekar eða einhverri cool borg eins og Chicago. Möguleikarnir eru endalausir, eða það vona ég allavegna því ævintýrið mitt á ekki að enda fyrr en í september :o)

En ég verð að fara, skirfa meira um allt annað fljótlega. Svo er ég búin að setja inn myndir frá síðustu helginni í maí og þær eru geðveikar svo einhvað er sagt ;c)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home