Supernova
Okei, ég vona að allir heima séu að fyljast með Rock Star Supernova! Ég var að springa þegar kosningin var, var á tímabili að tala við Martinu og ég öskraði í síman því Magni komst áfram. Greyið Martina hélt ég væri að missa mig en skildi mig alveg þegar ég var búin að útskýra hversu mikilvægt þetta væri því við erum svo fámenn þjóð. En allavegna þá finnst mér fábært að sjá íslending í þessum þætti og ég vona að Magni komist einhvað áfram! Bæðuvei get varla beðið með að sjá næsta þátt sem er í kvöld hjá mér :o)
Það er annars ekkert mikið búið að vera í gangi hjá mér, var að vinna alla síðustu viku en var í helgarfríi núna um helgina. Ég fór á Art & Wine Festival á laugardaginn og svo um kvöldið fórum við út að djamma. Fórum á Monte Carlo og Georg reyndi að kenna okkur að dansa Salsa, það gékk nú svolítið erfiðlega svo við sátum bara og svo komu einhverjir strákar og buðu okkur upp í dans! Þá fyrst byrjaði fjörið, Herman (maðurinn sem bauð mér upp) er höfðinu lærri en ég svo það var ábyggilega svolítið skondið að sjá okkur dansa og mér leið eins og risa. En allavegna þá náði hann að kenna mér smá og undir lokin þá var ég farin að ná flestum sporunum!! Ég var reyndar að drepast í löppunum því þú ert mest á fremsta hlutunum á löppunum og svo var ég líka með smá svima því hann var alltaf að snúa mér í hringi. En ég ætla pottþétt að fara aftur að dansa Salsa því það er frábær líkamshreyfing og mér leið rosalega vel á sunnudeginum.
Á sunnudeginum vöknuðum við Melkorka snemma og fórum í Paramont Great America og láum hjá laugunum í nokkra tíma og fórum í nokkrar rennur sem var geðveik gaman. Eftir þessa afslöppun var farið á Cheesecake Facturie og svo farið að sjá Pirates of the Caribean 2. Myndin er svolítið lengi að byrja en þegar hún byrjar þá er hún geðveikt góð, mæli með að fólk fari á hana og svo endar hún þar sem næsta á að byrja sem gefur manni einhvað til að hlakka til. Oh já og svo er maður görsamlega að slefa yfir Johnny Depp og Orlando Bloom, þeir eru miklu kynþokkafyllri en í fyrri myndinni ef það er þá hægt ;c)
Jæja þetta ætti að vera nóg í bili og ég fer að setja inn fleiri myndir þegar ég hef meiri tíma í vikunni. Farið vel með ykkur og eitt svona í lokinn þá kem ég heim efitir rúmar 9 vikur :o)

3 Comments:
At July 13, 2006,
Anonymous said…
er þátturinn á mánudagskvöldum hjá þér?
Þeir eru nebbla að sýna þáttinn á SkjáEinum hér á Íslandi á þriðjudagskvöldum og halda því fram að það sé bein útsending!
At July 15, 2006,
Birna said…
Þeir eru á þriðjudagskvöldum hjá okkur líka! Ég skrifaði þetta bara svo seint á mánudasgkvöldi svo að ég sagði í kvöld og meinti þriðjudagskvöld ;c)
At July 17, 2006,
Anonymous said…
hahah já ok... hélt þeir væru eitthvað að plata okkur!
Post a Comment
<< Home