Þvílíkur hiti og nýjar myndir
Magni enn í Supernova og þvílík framkoma hjá honum í gær, hann görsamlega átti gólfið!! Ef hann kemst langt þá er bara spurning hvort maður reyni að fara til LA og reyna að komast sem áhorfanid í þáttinn, hvernig sem maður fer að því er annað mál.
Það er búið að vera svo heitt hérna síðustu daga að stundum get ég ekki farið út fyrr en það er farið að kólna því ég á bara erfitt með að anda úti. Rakst akkúrat á þessa grein á Vísi áðan og fanst tilvalið að setja hana hérna inn. http://www.visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=/20060719/FRETTIR02/60719058/1091
Annars er hitinn búin að vera frá 28 til 34 gráður á hverjum degi hérna, ég ætla rétt að vona að það fari aðeins að kólna svo maður geti farið í sólbað aftur ;c)
Það er nú ekki mikið annað að frétta af mér, er bara mest búin að vera inni fyrir vegna hita. Var að vinna síðasta föstudagskvöld og á laugardeginum var bara slappað af. Fór í ræktina, þreif bílinn, synti smá og fór svo í bíó. Fór svo í Great America á sunnudeginum með Melkorku, Martinu og Georg, við áttum rosalega skemmtilegan og afslappaðan dag :o)
Annað þá er ég að setja inn nýjar myndir frá San Diego ferðinni og fleira svo endilega að kíkja á þær og skilja svo eftir comment hérna um hvernig ykkur finnst. Er búin að vera að prófa nýjar stillingar á myndavélinni og er rosalega hrifinn af einni sem gerir myndirnar brúnleitar. Allavegna þá væri það frábært ef þið getið sagt mér hvað ykkur finnst!

0 Comments:
Post a Comment
<< Home