Okei, ég gefst upp!!
Vegna fjölda áskoranna þá skal ég byrja að blogga aftur, það er bara ekkert merkilegt búið að vera í gangi! Nema þá kannski að ég er í fjarnámi frá FÁ, er að fara á Eurovison í Finlandi eftir 15 daga, er komin með kall og svo varð ég 25 ára þann 8 apríl síðast liðinn :o)
Það hefur svo sem ekki margt á daga mína drifið að undanförnu nema kannski þá að ég hélt upp á afmælið mitt 14 apríl og það var alveg æðislegt. Ég var með bollu og jelly skot sem gerðu mikla lukku hjá Elísabetu og Ella (kærastinn minn) því þau fóru í keppni hvor gæti tekið flest skot í einu!! Þau urðu heldur betur skrautleg :o) En kvöld var mjög skemmtilegt og allir náðu rosalega vel saman þó þau þekktust ekkert. Við enduðum svo kvöldið með því að fara í VIP herbergið á Pravda með 2 freyðivínsflöskur! Við fengum sem sagt að kveðja Pravda með stæl eins og sagt er ;c) Harma þann stað ekki mikið og er bara smá fegin að hann er "farinn".
Jæja þetta er nóg í bili því ég er í vinnunni og er að fara í mat, vona að ég hafi tíma til að updeita ykkur reglulega (veit að update er rétt orð en er að reyna að íslenska það pínu).