Bara ég
Ég var að fatta að ég er ótrúlega heimsk. Ástæða þess að ég hef ekki skrifað neitt lengi er vegna þess að ég gleymdi notendanafninu mínu, ég hélt að það væri annað en það raunverlega er svo ég setti það alltaf inn og það gekk en ég sá aldrei síðustu uppfærslur og fleira sem ég hef inn á þessu!! Ég veit ég veit, ætla að passa uppá þetta betur í framtíðinni... En annars er allt gott að frétta, vikan sem fjölskyldan var í burtu var frábær!! Ég keyrði næstum á hverjum degi til Jim því ég hafði engan áhuga á að vera einn í risa húsi í miðjum skógi þar sem nágrannarnir mundu ekki einu sinni heyra í þjófavarnarkerfinu.... traustvekjandi og svo eru bara 2 lögreglubílar á svæðinu!! Svo ég keyrði 3 tíma á dag til að vera með Jim og að hitta Sam (vinkona mín frá Ástralíu)!! Hún kom reyndar til mín eina kvöldið sem ég var þarna þessa viku og náðum við að hafa stelpukvöld með stelpu myndum og slúðri :o)
Ég hef samt góðar fréttir, ég kem mjög líklega í heimsókn í ágúst í 2 vikur!!!! Jim hefur 2 vikur milli sumarskólans og þar til skólinn byrjar aftur. Við erum enn að skoða þetta og ég hef ekki beðið um frí enn þá en ég fæ það örugglega því ég á inni 2 vikur. Það er reyndar annað í þessu og það er að ég ætla að skifta um fjölskyldu fyrir næsta ár í ágúst svo kannski hætti ég hjá þessari sem ég er hjá þegar ég fer til Íslands og þegar ég kem aftur flyt ég til nýrrar fjölskyldu og byrja annað árið mitt hérna í ameríkunni.
Verð annars að fara núna, kem samt fljótlega aftur því ég skrifaði ekkert í næstum mánuð svo ég verð að bæta það upp :o)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home