Birna

Friday, April 08, 2005

Ég á afmæli :o)

Jæja þetta verður fyrsta afmæli mitt þar sem ég er annars staðar en á Íslandi. Það er frekar skrítið að hugsa um það að þetta verður allt öðru vísi en venjulega þegar ég á afmæli! Venjulega bíð ég vinum í mat eða party en núna fer ég fínt út að borða með Jim og kannski bróður hans og kærustu. Ég keypti mér rosalega sæta skó síðustu helgi, þeir eru ljósbleikir með opna tá, allavegna þá ætla ég að vera í þeim og einhverju bleikum bol og annað hvort pilsi eða buxum (það fer eftir veðri, það er að verða betra með hverjum degi)!!
Ég segi ykkur hvernig fór um helgina, O.C. var að byrja og það er með einu þáttunum sem ég horfi á :o)

3 Comments:

  • At April 08, 2005, Anonymous Anonymous said…

    Elsku elsku Birna mín !
    Til hamingju með afmælið krúsímúsin mín !
    Mikið voðalega sakna ég þín, það vantar alveg 5 mínútna knúsið okkar og tilheyrandi píkuskræki ! Við verðum að sletta úr klaufunum þegar þú kemur í ágúst - það er sko alveg á hreinu !
    Jæja, farðu vel með þig í dag og láttu dekra við þig ;) Ég hringi í þig í kvöld !

    Afmælisknús, Rannveig (og Grétar og Gabríel).

     
  • At April 08, 2005, Blogger Unknown said…

    Sæl Frænka,
    Komst að því að þú átt afmæli í dag þannig að ég fór á veraldarvefinn og leitaði þig uppi og gettu hvað ég fann ¿

    Til hamingju með daginn !!!

     
  • At April 10, 2005, Anonymous Anonymous said…

    Hæhæ elsku Birna mín.. Til hamingju með afmælið um daginn ég hugsaði til þín á afmælisdaginn þinn en mundi ekkert bloggið þitt og þá hitti ég hauk frænda sem bjargaði mér ;) En vonandi áttiru bara fínan dag ;) ÉG fylgist með þér frænka og kíktu á heimasíðuna okkar vinkvennanna TLC klúbburinn er komin með heimasíðu !!

     

Post a Comment

<< Home